Gömul rök og ný
Rökin með og á móti inngöngu Íslands í Evrópusambandið hafa verið kembd
í þaula. Þau eru ýmist af hagrænum eða pólitískum toga. Ég hef lengi
verið þeirrar skoðunar, að Íslendingar hafi hag af inngöngu í ESB umfram
þær hagsbætur, sem fylgdu inngöngunni á Evrópska efnahagssvæðið 1994. |
Hagurinn af inngöngu í ESB felst í aðgangi að ódýrari og betri mat og
drykk, lægri vöxtum, einkum ef upptaka evrunnar fylgir með í kaupunum
svo sem stendur til, minni verðbólgu, meiri samkeppni, minna okri, meiri
valddreifingu, minni sjálftöku, virkara aðhaldi og eftirliti. Jafnvel
þótt þessar hagsbætur væru ekki fyrirsjáanlegar, væri ég fyrir mína
parta hlynntur inngöngu í ESB af pólitískum ástæðum. Það stafar af því,
að ESB er allsherjarbandalag allra helztu vinaþjóða Íslands í Evrópu
nema Norðmanna og Svisslendinga, og í þeim hópi eigum við heima, þótt
einhver okkar kunni að öllu samanlögðu að draga hagsbæturnar í efa. Við
eigum ekki að spyrja að því einu, hvaða hag við getum haft af ESB. Við
eigum einnig að hugsa til þess, sem við kunnum að hafa þar fram að færa. |
Rökin gegn aðild eru misjöfn að gæðum. Okrarar kæra sig ekki um aðild,
því að þeir þurfa þá að láta af iðju sinni. Spilltir stjórnmálamenn munu
einnig missa spón úr aski sínum, þar eð þeir munu eiga erfiðara
uppdráttar í kröfuhörðum evrópskum félagsskap, og kallar ESB þó ekki
allt ömmu sína. Bankarán um bjartan dag verða einnig torveldari undir
vökulum augum bankayfirvalda og fjármálaeftirlits ESB. Václav Havel,
forseti Tékklands, orðaði þessa hugsun skýrt um árið: Engum nema
glæpamönnum getur stafað ógn af inngöngu í ESB. Rök þjóðernissinna gegn
fullveldisafsali hafa nú holan hljóm, svo illa sem stjórnvöldum hélzt á
óskoruðu fullveldi Íslands. Stjórnmálamenn, embættismenn, bankamenn og
stjórnendur stórfyrirtækja keyrðu landið í kaf og bökuðu erlendum
viðskiptavinum bankanna svo stórfellt fjárhagstjón, að þeim kann sumum
að þykja eðlilegt, að Íslendingar deili framvegis fullveldi sínu með
þeim og öðrum, svo að þeim stafi ekki frekari hætta af íslenzkum
fjárglæframönnum. Það er skiljanlegt viðhorf af erlendum sjónarhóli.
Þjóðverjar kusu að binda hendur sínar innan ESB af tillitssemi við
granna sína í ljósi sögunnar. Þetta var einnig hugsun sumra heiðvirðra
Færeyinga í kreppunni þar um og eftir 1990: þeim fannst rétt að bjóðast
til að segja sig úr ríkjasambandinu við Danmörku af virðingu fyrir
Dönum, en af því varð þó ekki. |
Norðmenn líta margir svo á, að þeir þurfi ekki á aðild að ESB að halda,
þar eð þeim séu allir vegir færir á eigin spýtur í krafti olíuauðsins,
sem þeir hafa safnað í digran sjóð. Það kann að vera rétt, en þessi rök
vitna ekki um mikið örlæti gagnvart fátækari þjóðum innan ESB. Sumir
Íslendingar tóku í sama streng og bentu á, að lífeyrissjóðirnir íslenzku
námu 100.000 Bandaríkjadölum á mann 2007 borið saman við 85.000
Bandaríkjadali á mann í olíusjóði Norðmanna. Það var þá. Gengi krónunnar
hefur lækkað um röskan helming frá 2007, svo að lífeyrissjóðirnir eru nú
mælt í dollurum á mann kannski hálfdrættingar á við olíusjóð Norðmanna,
sem þeir kalla nú lífeyrissjóð. Ríkidæmisrökin gegn inngöngu Íslands í
ESB eiga ekki lengur við. Þau voru falsrök. Ríkidæmið 2007 var tálsýn,
sem var reist á rammfölsku gengi krónunnar og hlutabréfa og einnig á
uppsprengdu verði fasteigna. |
Tildrög bankahrunsins verða ljósari með hverjum deginum sem líður.
Eigendur og stjórnendur bankanna og nokkurra stórfyrirtækja létu greipar
sópa um bankana og fyrirtækin, til dæmis Sjóvá. Ránsmennirnir keyptu sér
frið til að braska með innstæður og sjóði bankanna og fjöregg
þjóðarinnar með því að raða í kringum sig vinveittum virðingarmönnum úr
stjórnmálaflokkunum, einkum Sjálfstæðisflokknum. Aðild Íslands að ESB
myndi greiða fyrir nauðsynlegu uppgjöri, þar eð margir íbúar ESB-landa
hafa orðið fyrir miklum skakkaföllum af völdum íslenzkra banka. Þetta
fólk á ekki síður en Íslendingar heimtingu á, að ábyrgðarmenn hrunsins,
eigendur og stjórnendur banka og stórfyrirtækja og aðrir, sem brutu af
sér, verði dregnir til ábyrgðar að lögum. Aðeins með undanbragðalausu
uppgjöri við hrunið og alla helztu ábyrgðarmenn þess munu Íslendingar
geta endurheimt sjálfsvirðingu sína og samheldni og einnig það
trúnaðartraust, sem ríkti áður í landinu og í samskiptum Íslands við
önnur lönd, annars varla. |
Fréttablaðið, 23. júlí 2009.