Liðið eða leikurinn?
Íþróttafréttamenn eru ekki hlutlausir í landsleikjum. Þá halda þeir með
landsliðinu og leyna því ekki. Flestir íþróttafréttamenn kunna samt að
meta góð tilþrif á báða bóga. Hlutdrægni þarf ekki að útiloka sannmæli.
Málið vandast, þegar Valur og Víkingur keppa. Þá þurfa fréttamenn helzt
að gæta hlutleysis. Hlutleysiskrafan er afstæð. Bjarni Fel gat ekki
leyft sér að lýsa KR-leik eins og landsleik, þótt hann langaði. Stjórnmálafréttamenn þurfa með líku lagi að vera hlutlausir, finnst mörgum, og þekkja samt muninn á réttu og röngu. Hlutleysi í stjórnmálafréttum hefur verið á undanhaldi. Nú tíðkast, að bandarískir sjónvarpsmenn lýsi skoðunum sínum fyrir áhorfendum líkt og leiðara- og dálkahöfundar blaða. Þessi tilhneiging hefur undið upp á sig. Nú þykir það ekki tiltökumál, að fréttamenn standi uppi í hárinu á viðmælendum sínum. Er það afturför? Voru skoðanaskipti í sjónvarpi fróðlegri, þegar dr. Gunnar Schram, síðar prófessor, stýrði þeim af stakri nærgætni á sinni tíð, en þau eru nú undir vökulli stjórn Egils Helgasonar? Ekki finnst mér það. Við eigum nú á að skipa auk Egils og Jóhanns Haukssonar mörgum góðum blaðamönnum, sem standa á öxlum Jónasar Kristjánssonar ritstjóra, halda sig utan og ofan við stjórnmálaflokkana og segja þeim til í breytilegum hlutföllum. |
Engum dytti í hug að láta byggðasjónarmið hafa áhrif á skipan
handboltalandsliðsins. Allir vita, hvaða árangurs væri að vænta á
alþjóðamótum, ef stjórnmálaflokkarnir ættu fulltrúa í landsliðinu eða ef
styrkjum fyrirtækja til Handknattleikssambandsins fylgdu afskipti af
skipan liðsins og leiktækni. Slík sjónarmið hafa aldrei komið til tals,
og landsliðið hefur náð góðum árangri. Þessi einfalda íþróttaregla hefur
ekki verið virt á vettvangi stjórnmálanna og ekki heldur á þeim sviðum,
þar sem stjórnmálaflokkarnir hafa skammtað sér mest ítök, svo sem í
dómsmálum. Þar tíðkast enn að skipa mönnum til verka með
stjórnmálasjónarmið að leiðarljósi, ef ljós skyldi kalla. Bankamálin
voru sama marki brennd og dómsmálin fram að hruni og eru enn. Engan þarf
að undra, að þjóðin vantreystir Alþingi, bönkunum og dómskerfinu.
Handboltalandsliðið nýtur trausts.
Árangur Íslendinga stendur yfirleitt í öfugu hlutfalli við ítök
stjórnmálaflokkanna. Íþróttir, listir, fræði og vísindi hafa að mestu
fengið að vera í friði, og þar er ýmislegt eins og það á að vera.
Bankar, dómstólar og að sumu leyti löggæzla eru gegnsýrð af stjórnmálum,
og þar stendur ekki steinn yfir steini. Hrun bankanna spratt sumpartinn
af landlægri stjórnmálaspillingu. Forsagan er sár og löng. Ég hef
stundum sagt, að kvótinn hafi varðað veginn að einkavæðingu bankanna, en
við getum farið enn lengra aftur í tímann til að vitja upphafsins. |
Gamla helmingaskiptaspillingin
ágerðist í kringum umsvif Bandaríkjahers á Keflavíkurflugvelli árin
eftir stríð. Af henni spruttu skipuleg lögbrot undir handarjaðri og
verndarvæng stjórnmálaflokkanna, svo sem lögreglumennirnir, sem
rannsökuðu brotin, eru enn til frásagnar um. Rannsakendur í olíumálinu,
einu mesta fjársvikamáli lýðveldissögunnar, ráku sig á veggi, enda áttu
þeir í höggi við einn helzta virðingarmann Framsóknarflokksins,
forstjóra SÍS, utanríkisráðherra og seðlabankastjóra, Vilhjálm Þór
(1899-1972). Lögregla varnarliðsins dróst inn í rannsóknina, þar eð
meint misferli varðaði meðal annars innflutning á olíu, sem var líkt og
önnur aðföng tollfrjáls handa varnarliðinu. Olíufélagið, sem Vilhjálmur
stýrði, skaut sér undan tollum með því að flytja olíu milli tanka.
Brotin voru framin 1950-60. Kananum var varla skemmt, þegar rússnesk
olía fannst í bandarískum tönkum innan vallarsvæðisins. Aðild
Bandaríkjamanna að rannsókninni torveldaði yfirhylmingu. Málið fór fyrir
dóm. Framkvæmdastjóri félagsins var dæmdur í fjögurra ára fangelsi og
stjórnarmenn í fjársektir. Stjórnarformaðurinn, Vilhjálmur Þór, þá
seðlabankastjóri, fékk dóm í undirrétti, vægan að vísu, og var sýknaður
í Hæstarétti 1963 á þeirri forsendu, að sök hans væri fyrnd. Kristján
Pétursson löggæzlumaður lýsir olíumálinu í bók sinni
Margir vildu hann feigan
(1990). |
Kannski hefðu helmingaskiptaflokkarnir vandað sig betur við einkavæðingu
bankanna, hefðu þeir áður horfzt undanbragðalaust í augu við afbrot
Vilhjálms Þór og önnur skyld brot í bönkunum og annars staðar. Hrunið
kallar á, að nú verði, þótt seint sé, gerð fullnægjandi grein fyrir
þessum gömlu brotum. Til að uppræta spillinguna, sem varð Íslandi að
falli, þurfa Íslendingar að horfast fordómalaust í augu við fortíðina,
hefja sig yfir flokkadrætti og hætta að halda með flokknum sínum eins og
fótboltaliði. Höldum heldur með leiknum. |