Rússagull
Erlendum fjárfestum í Rússlandi ríður á að stíga varlega til jarðar.
Embættismenn, nýríkir fávaldar, stjórnmálamenn og glæpamenn bítast um
arðinn af auðlindum landsins, einkum olíu, jarðgas og málma. Hingað til
hefur lítið verið vitað um fjárhæðirnar, sem bitizt er um, en nú hefur
bandaríski bankinn Citigroup birt tölur til að bregða birtu á málið.
|
Lykillinn að réttum skilningi á málinu er auðlindarentan, sem
hagfræðingar kalla svo, og skipting hennar. Auðlindarentan er munurinn á
söluverðmæti afurða auðlindanna á heimsmarkaði og framleiðslukostnaði.
Töku olíulind til dæmis. Olíufarmur, sem selst á eina milljón
Bandaríkjadala á heimsmarkaði, kostaði kannski ekki nema 100 þúsund dali
í framleiðslu. Rentan er þá afgangurinn eða 900 þúsund dalir.
Citigroup telur, samkvæmt frásögn
Financial Times 9. júlí 2011, að söluverðmæti afurða rússneskra
náttúruauðlinda nemi um 650 milljörðum dala á ári og
framleiðslukostnaðurinn nemi um 150 milljörðum dala. Það gerir
auðlindarentu upp á 500 milljarða dala á hverju ári. Hver hirðir
rentuna? Hvernig skiptist hún?
Spurningin brennur á mörgum vegna þess, að auðlindarenta upp á 500
milljarða dala gerir 14 þúsund dali á hverju ári á hverja fjögurra manna
fjölskyldu í Rússlandi. Það munar um minna í landi, þar sem
landsframleiðsla á mann (á kaupmáttarkvarða) er um 18 þúsund dalir
samkvæmt tölum Alþjóðabankans. Við þetta bætist, að rússneska þjóðin á
auðlindirnar samkvæmt bindandi Alþjóðasamningi um borgaraleg og
stjórnmálaleg réttindi frá 1966, sem Rússar hafa eins og Íslendingar og
flestar aðrar þjóðir heims undirritað og fullgilt. Þar segir í fyrstu
grein (í þýðingu utanríkisráðuneytisins): „Allar þjóðir mega,
í sínu eigin markmiði, ráðstafa óhindrað náttúruauðæfum og auðlindum
sínum…“ Í þessu felst, að hvorki erlendum mönnum né innlendum
leyfist að sölsa auðlindirnar undir sig.
|
Á móti
þessari skuldbindingu standa veikluleg ákvæði í stjórnarskrá Rússlands
frá 1993, en þar segir í 9. grein: „Land og aðrar náttúruauðlindir skulu
nýttar og verndaðar í Rússlandi sem lífsbjörg og starfsgrundvöllur
fólksins í landinu. Land og aðrar náttúruauðlindir geta verið í
einkaeigu, ríkiseigu, eigu sveitarfélaga og annarra.“ Takið eftir þessu:
„og annarra.“
Auðlindarenta Rússa skiptist þannig, gróft reiknað, að 310 milljarðar
dala, eða yfir 60 prósent af heildinni, verða til í olíugeiranum, 160
milljarðar verða til í gasvinnslu og afgangurinn í málmvinnslu. Og
hvernig skyldi öllu þessu fé vera varið?
Sérfræðingur Citigroup telur, að ríkið hirði 58 prósent af rentunni með
skattheimtu og verji 18 prósentum i niðurgreiðslur, á bensíni meðal
annars. Það gerir samtals 76 prósent. Til fjárfestingar er varið um 16
prósentum af rentunni til viðbótar. Afgangurinn, 8 prósent, rennur til
hluthafa að fávöldunum – ólígörkunum – meðtöldum. Citigroup gætir sín á
að slá ekki mati á hlutdeild glæpamanna í rentunni, en hlutdeild þeirra
er talin vera falin í útgjaldaliðum á borð við öryggisvörzlu. Bankinn
reynir ekki heldur að meta, hversu mikill hluti skattteknanna af
auðlindunum hverfur inn á reikninga spilltra stjórnmálamanna,
embættismanna og einkavina þeirra. Vandinn er þekktur, en umfang hans er
óþekkt.
|
Til samanburðar hefur norska ríkið leyst til sín um 80 prósent of
olíurentu Norðmanna gegnum tíðina. Þar er engu stolið.
Í drögum að nýrri stjórnarskrá Færeyja segir svo í íslenzkri þýðingu: „Við nýtingu auðlinda skulu stjórnvöld annaðhvort innheimta auðlindagjald eða tryggja öllum jafnræði til nýtingar Arður af landi og fiskimiðum, sem ekki eru í einkaeign, er auðlind og eign fólksins.
|
Fréttablaðið, 21. júlí 2011.