Leiðsögn þjóðfundarins
Þjóðfundur um stjórnarskrá var haldinn í Laugardalshöll í Reykjavík
laugardaginn 6. nóvember 2010. Fundinn sóttu 950 manns af landinu öllu,
frá 18 ára til 91 árs að aldri, og var kynjaskipting nánast jöfn. Sjö
manna stjórnlaganefnd, skipuð af Alþingi, skipulagði þjóðfundinn og
birti helztu niðurstöður hans. Þjóðfundargestir voru valdir af handahófi
úr þjóðskrá. Fjöldi fundarmanna, 950 manns, tryggir, að niðurstöður
þjóðfundarins endurspegla vilja þjóðarinnar í tölfræðilega marktækum
skilningi. Allir Íslendingar 18 ára og eldri áttu jafna möguleika á að
veljast til setu á þjóðfundinum. Fyrri þjóðfundur, sem áhugamenn víðs
vegar að höfðu haldið með sama sniði árið áður, reyndist gagnleg
fyrirmynd. |
Þau tvö atriði, sem flestir þjóðfundarfulltrúar töldu skv. talningu
mikilvægast að búa um í nýrri stjórnarskrá, eru jafnrétti og lýðræði.
Stjórnlagaráð hlýddi kalli þjóðfundarins m.a. með því að kveða á um
jafnt vægi atkvæða og auðlindir í þjóðareigu.
Þetta sagði þjóðfundurinn m.a. um mannréttindi: „Vægi atkvæða verði
jafnt.“ Takið eftir þessu: Ekki jafnara, heldur jafnt. Tillaga um jafnt
vægi atkvæða var fyrst borin fram 1849. Það gerði Fjölnismaðurinn
Brynjólfur Pétursson, vinur Jónas Hallgrímssonar, nýkominn af danska
stjórnlagaþinginu, sem hann sat sem fulltrúi Íslands. Tillaga Brynjólfs
náði ekki fram að ganga. Tilraunir til að jafna atkvæðisréttinn, oftast
undir forustu Sjálfstæðisflokksins, báru smám saman árangur, en þó ekki
meiri en svo, að enn er tvöfaldur munur á vægi atkvæða milli landshluta.
Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu, ÖSE,
sem annast
kosningaeftirlit í Evrópu, telur af jafnréttisástæðum, að misvægi
atkvæða skuli ekki vera meira en tíu prósent og alls ekki meira en
fimmtán prósent nema í undantekningartilvikum.
Þjóðfundurinn hlýddi kallinu.
Þessu bætti þjóðfundurinn við um lýðræði til að hnykkja á boðskapnum:
„Á Íslandi skal vera virkt og gagnsætt lýðræði. Vægi atkvæða verði
jafnt í einu kjördæmi, kosningar með persónukjöri, þingseta þingmanna
háð tímatakmörkunum og þeim fækkað. Lýðræðið byggi á þrískiptingu valds
og skýrum lögum um þjóðaratkvæðagreiðslu um mikilvæg málefni. Skipan
dómara skal endurskoðuð. Kjósendur með jafnan atkvæðisrétt geti einir
breytt stjórnarskrá.“ Skilaboðin voru skýr.
|
Þetta sagði þjóðfundurinn um auðlindir:
„Náttúra og auðlindir landsins eru óframseljanleg þjóðareign sem ber að
vernda, umgangast og nýta á sjálfbæran hátt þannig að aðgengi almennings
sé tryggt. Setja þarf skýr lög um eigna- og nýtingarétt þjóðarinnar á
auðlindum, náttúru og lífríki. Náttúru Íslands og auðlindir ber að
vernda fyrir komandi kynslóðir.“ Allir stjórnmálaflokkar á Alþingi hafa
ályktað, að í stjórnarskrá skuli kveða á um auðlindir í þjóðareigu.
Þjóðfundurinn var sama sinnis. |
Þetta hafði þjóðfundurinn að segja um valddreifingu, ábyrgð og gagnsæi:
„Tryggja þarf þrígreiningu valds þar sem hlutverk og ábyrgð ráðamanna
séu skýr. Ráðherrar skulu ekki gegna þingmennsku ásamt ráðherraembætti.
Stjórnarskráin ætti að tryggja gagnsæi og eftirlit með stjórnsýslu.
Fagmennska ráði för við ráðningar í störf í stjórnsýslunni. Endurskoða
þarf vald forseta Íslands og taka afstöðu til neitunarvalds hans.
Takmarka ætti þann tíma sem alþingismenn mega sitja á þingi. Tryggja
þarf sjálfstæði dómstóla.“
Stjórnlagaráð hlýddi kalli þjóðfundarins að langmestu leyti svo sem lög
gera ráð fyrir. Eina umtalsverða frávikið varðar Alþingi. Í ljósi
þarfarinnar fyrir að styrkja stöðu Alþingis gagnvart framkvæmdarvaldinu,
eins og Rannsóknarnefnd Alþingis lýsti m.a. eftir, ákvað Stjórnlagaráð
að leggja til óbreyttan fjölda þingmanna og óbreytt, þ.e. engin,
tímamörk á setu alþingismanna á þingi. Alþingi er skv. frumvarpinu látið
eftir að ákveða fjölda kjördæma, frá einu upp í átta. Því má segja, að
Stjórnlagaráð hafi að þessu leyti gengið skrefinu skemmra en
þjóðfundurinn lýsti
eftir.
Frumvarp Stjórnlagaráðs er ýmist gagnrýnt fyrir að ganga of langt eða of
skammt. Það liggur í hlutarins eðli. Frumvarpið, sem er sprottið af
þjóðfundi, er hófsamt sameiningar- og sáttafrumvarp. Því er ætlað að
standa vörð um þingræðisskipulagið og styrkja stöðu þess með því að
treysta valdmörk og mótvægi til að girða fyrir ofríki
framkvæmdarvaldsins, efla Alþingi og styrkja sjálfstæði dómstólanna. |