Músík og mannasiðir
Vinur minn einn hefur farið svo víða og gert svo margt, að hann á að
heita má ekkert eftir. Honum finnst tvennt skara fram úr öllu öðru, sem
hann hefur tekið sér fyrir hendur: að tína sveppi og renna sér á
skautum. Þegar hann gifti sig, bauð hann konunni með sér að tína sveppi.
Hún spurði, hvort það væri óhætt. Treystu mér, sagði hann. Þau héldu
síðan dýrlega sveppaveizlu. Konan fékk matareitrun og var margar vikur
að ná sér. Tók þá vötnin að leggja, og vinur minn bauð konunni með sér á
skauta. Er það óhætt? spurði hún. Treystu mér, sagði hann. Hann var
vanur skautamaður. Hún dróst aftur úr honum á svellinu, þetta var í 25
stiga frosti, og þá heyrir hann ísinn bresta fyrir aftan sig. Honum
tókst við illan leik að draga króknandi konuna upp úr vökinni og koma
henni í hús og þurfti að nota hitablásara til að þíða utan af henni
fötin. Nú tína þau saman sveppi og renna sér á skautum eftir árstíðum. |
Þýzka tónskáldið Paul Hindemith var sömu gerðar að því leyti, að honum
þótti tvennt eftirsóknarvert: góð tónlist og hrein samvizka. Ekki veit
ég, hvort hann hafði reynt allt hitt. Tónlist er svo snar þáttur í lífi
fólks, að án hennar geta
fæstir verið.
Víkingar fluttu tvísönginn til Íslands, og hann varðveittist. Egill
Skalli söng Höfuðlausn fyrir
Eirík blóðöxi. Íslendingar kváðu rímur og sungu síðan sálma. En
þegar okkur vantaði þjóðsöng 1874, þurfti að sækja lagið við lofsöng
séra Matthíasar til Edinborgar, þar sem tónskáldið Sveinbjörn
Sveinbjörnsson bjó.
Sigfús Einarsson fluttist heim til Reykjavíkur 1906 og hafði fyrstur
Íslendinga tónlist að ævistarfi heima fyrir.
Æ fleiri Íslendingar lærðu að syngja og spila í útlöndum og fluttu
kunnáttuna með sér hingað heim til að deila henni með öðrum. Útvarpið
færði tónlist inn á hvert heimili í landinu eftir 1930. Tónlistarskólar
ruddu sér til rúms. Nemendur
þar voru um þúsund 1960, og nú eru þeir fjórtán þúsund í næstum hundrað
skólum um allt land. Það er bylting.
Stundum er sagt, að skólar séu til að kenna fólki að lesa, skrifa og
reikna. Mér finnst nær að segja, að skólar séu til að kenna fólki að
lesa, skrifa, reikna, rækta líkamann og sálina, syngja og spila.
Grunnskólar og framhaldsskólar sjá um lestur, skrift, reikning og
leikfimi, og tónlistarskólarnir sjá um hitt. Kannski væri ráð að búa
tónlistarskólunum í lögum hliðstæðan sess og öðrum skólum með þeim
rökum, að tónlist eigi af uppeldisástæðum heima við hliðina á lestri,
skrift, reikningi og leikfimi á jafnréttisgrundvelli. Gróskan í starfi
tónlistarskólanna myndi trúlega lyfta öðru skólastarfi. |
Músík kennir mönnum kurteisi. Enginn stendur upp frá strengjakvartett
eftir Beethoven eða píanókonert eftir Mozart til að fremja óhæfuverk eða
ausa svívirðingum yfir náungann. Það er að minnsta kosti sjaldgæft.
Rauði herinn stóð ráðalaus frammi fyrir tugþúsundum syngjandi fólks, sem
myndaði samfellda keðju frá Eistlandi um Lettland til Litháens 1991 og
tryggði sér með söng frjálsa framtíð við Eystrasalt.
Og þannig tókst leikaranum góða, George Hamilton, að bjarga lífi sínu um
árið. Þannig var, að hann var að leika í þriðja flokks mynd í Marokkó,
fékk helgarfrí, flaug til Madríd og komst þá að því, að í hverfinu var
hvergi deigan dropa að fá nema í tilteknu vændishúsi; Frankó var enn við
völd. Og sem hann kemur sárþyrstur á staðinn, sér Georgie sér til
mikillar undrunar móður sína sitja þar að sumbli með Övu Gardner. Hvað
ert þú að gera hér? spurði
mamma. En þú? spurði Georgie.
Hann bauð þeim upp á drykk, og þær fóru heim fyrir morgun; Ava var með
höfuðverk. Georgie bjóst einnig til brottfarar, nema þá kemur eigandi
hússins aðvífandi, 300 punda tarfur með tvö vöðvabúnt sér við hlið og
rekur framan í hann reikning upp á 30.000 dali. Það var mikið fé. Nú
voru góð ráð dýr, nema Georgie kemur þá auga á gítar, tekur hann í
fangið og syngur og spilar Love
Me Tender. Þremenningarnir horfðu á hann eins og naut á nývirki.
Vitið þér, hvað ég fæ greitt fyrir að syngja þetta lag í Las Vegas?
spurði Georgie. Tuttugu þúsund. Síðan söng hann og lék annað lag og
sagði við eigandann: Þér skuldið mér tíu þúsund. |
Fréttablaðið, 22. október 2009.