Ný stjórnarskrá þokast nær
Meiri hluti stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis hefur lagt fyrir þingið
tillögu til þingsályktunar um ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu um tillögur
Stjórnlagaráðs að frumvarpi til nýrrar stjórnarskrár og tiltekin álitaefni þeim
tengd. Þingályktunartillagan hljóðar svo:
„Alþingi ályktar að tillögur að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga sem
stjórnlagaráð afhenti forseta Alþingis 29. júlí 2011 og álitaefni þeim tengd
skuli borin upp í ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu ...
Þjóðaratkvæðagreiðslan fari fram samhliða forsetakosningum 30. júní 2012.
Eftirfarandi spurningar verði bornar upp í þjóðaratkvæðagreiðslunni:
1. Vilt þú að tillaga stjórnlagaráðs verði lögð fram sem frumvarp að nýrri
stjórnarskrá eftir að hún hefur verið yfirfarin með tilliti til laga og
alþjóðasamninga?
Merktu í reitinn fyrir framan þann valmöguleika sem þú kýst.
* Já, ég vil að tillaga stjórnlagaráðs verði lögð fram sem frumvarp að nýrri
stjórnarskrá eftir að hún hefur verið yfirfarin með tilliti til laga og
alþjóðasamninga.
* Nei, ég vil ekki að tillaga stjórnlagaráðs verði lögð fram sem frumvarp að
nýrri stjórnarskrá.
* Tek ekki afstöðu.
2. Einnig ertu beðin(n) um að svara nokkrum efnislegum spurningum um nýja
stjórnarskrá.
Vilt þú að í nýrri stjórnarskrá Íslands verði |
Já |
Nei |
Tek ekki
afstöðu |
1. náttúruauðlindir lýstar þjóðareign? |
|||
2. ákvæði um þjóðkirkju Íslendinga óbreytt frá því sem nú er ? |
|||
3. persónukjör í kosningum til Alþingis heimilað í meira mæli en
nú er? |
|||
4. ákvæði um að atkvæði kjósenda alls staðar að af landinu vegi
jafnt? |
|||
5. ákvæði um að tiltekið hlutfall kosningabærra manna geti
krafist
þess að mál fari í þjóðaratkvæðagreiðslu? |
* 10% |
Sex spurningar, sex svör
Ég greiddi í Stjórnlagaráði atkvæði með frumvarpi ráðsins í heild eins og allir
aðrir ráðsfulltrúar og einnig með öllum einstökum greinum frumvarpsins lið fyrir
lið, og ég ætla að ráðstafa atkvæði mínu í þjóðaratkvæðagreiðslunni 30. júní í
samræmi við það. Ég ætla því efst á kjörseðlinum að merkja við „Já,
ég vil að tillaga stjórnlagaráðs verði lögð fram sem frumvarp að nýrri
stjórnarskrá ...“
Spurningunum fimm á neðri hluta seðilsins ætla ég að svara svo.
Vilt þú, að í nýrri stjórnarskrá verði náttúruauðlindir lýstar þjóðareign? Já,
þetta er eitt mikilvægasta ákvæði frumvarpsins og svarar kalli þjóðfundarins
2010 og stefnu allra stjórnmálaflokka á Alþingi.
Vilt þú, að ákvæði um þjóðkirkju Íslendinga verði óbreytt frá því sem nú er?
Nei, ég tel ákvæðið í frumvarpi Stjórnlagaráðs betra. Óbreytt skipan myndi þó
ekki raska frumvarpinu að öðru leyti.
Vilt þú, að persónukjör í kosningum til Alþingis verði heimilað í meira mæli en
nú er? Já, þetta er snar þáttur í kosningaákvæðinu í frumvarpi Stjórnlagaráðs og
svarar kalli þjóðfundarins 2010.
Vilt þú, að í nýrri stjórnarskrá verði ákvæði um að atkvæði kjósenda alls staðar
að af landinu vegi jafnt? Já, þetta er ásamt auðlindaákvæðinu eitt mikilvægasta
ákvæði frumvarpsins.
Vilt þú, að í nýrri stjórnarskrá verði ákvæði um að tiltekið hlutfall
kosningabærra manna geti krafizt þess að mál fari í þjóðaratkvæðagreiðslu? Já,
og mér finnst, að hlutfallið eigi að vera 10% eins og frumvarp Stjórnlagaráðs
kveður á um. Hærra hlutfall, 15% eða 20%, myndi leiða til færri
þjóðaratkvæðagreiðslna eða engra fyrir frumkvæði kjósenda, ef marka má reynsluna
utan úr heimi, en það myndi þó ekki raska frumvarpi Stjórnlagaráðs að öðru
leyti.
DV, 23. marz 2012.