Íslenzk andsaga
Það heitir andsaga, þegar sögð er saga af atburðum, sem áttu sér ekki
allir stað, en hefðu getað gerzt. Hér er andsaga úr íslenzkum veruleika. |
Að lokinni þjóðaratkvæðagreiðslu 20. október 2012, þar sem 2/3 kjósenda
lýstu stuðningi við nýja stjórnarskrá og yfirgnæfandi hluti kjósenda
lýsti einnig fylgi við nokkur helztu einstök ákvæði hennar, lýsti
Alþingi því yfir, að það myndi samþykkja frumvarpið efnislega óbreytt.
Þessi yfirlýsing kom ekki á óvart, þar sem 32 þingmenn af 63 höfðu
skriflega lýst þeirri skoðun, að þeim bæri að virða niðurstöðu
þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Þessir þingmenn skilja og virða, að þjóðin er
yfirboðari þingsins og þinginu leyfist ekki að taka völdin af þjóðinni.
Frumvarpið var samþykkt á Alþingi haustið 2012 með 32 atkvæðum gegn 16,
en 15 þingmenn sátu hjá eða voru fjarverandi. Hlutföll greiddra atkvæða
á Alþingi voru svipuð og í þjóðaratkvæðagreiðslunni.
Stjórnarskrármálið var eitt helzta kosningamálið fyrir
alþingiskosningarnar 2013. Að loknum kosningum lét Alþingi það verða
sitt fyrsta verk að staðfesta samþykkt nýrrar stjórnarskrár í samræmi
við vilja þjóðarinnar og fyrra þings, og gekk þá nýja stjórnarskráin í
gildi. Síðan var mynduð ný ríkisstjórn. |
Ríkisstjórnin lét það verða sitt fyrsta verk að boða afturköllun
ákvörðunar fyrri ríkisstjórnar um hækkun veiðigjalda. Forseti Íslands
sýndi engin merki þess, að hann hygðist skjóta málinu í dóm þjóðarinnar
þrátt fyrir fyrri yfirlýsingar um, að stjórn fiskveiða sé mál, sem vel
eigi við að vísa til þjóðaratkvæðis. Þar eð forsetinn hélt að sér
höndum, var 35.000 undirskriftum atkvæðisbærra manna safnað undir kröfu
um að vísa málinu til þjóðaratkvæðis, og var fjöldi undirskriftanna
langt yfir 10% markinu, sem nýja stjórnarskráin kveður á um, að dugi til
að knýja fram þjóðaratkvæðagreiðslu. Atkvæðagreiðslan var haldin innan
árs, og var lækkun veiðigjaldsins hafnað. Vænkaðist þá hagur ríkissjóðs,
svo að unnt var að koma m.a. rekstri Landspítalans á traustari grunn.
Ótímabærum dauðsföllum vegna fjárskorts á spítalanum fækkaði.
Utan þings var samið frumvarp til nýrra fiskveiðistjórnarlaga í samræmi
við auðlindaákvæði nýju stjórnarskrárinnar til að leggja fram á Alþingi
með undirskrift 2% atkvæðisbærra manna eins og nýja stjórnarskráin
heimilar. Þetta var gert, þar eð vitað var, að þingmenn ætluðu að leggja
fram kvótafrumvarp til að reyna að fara í kringum ákvæði nýrrar
stjórnarskrár um auðlindir í þjóðareigu. |
Þegar efnt var til mótmæla gegn umhverfisspjöllum í Gálgahrauni, kom sú
hugmynd upp í ríkisstjórninni, að réttast væri að siga lögreglunni á
mótmælendur, handtaka þá og lögsækja. Starfsmaður í stjórnarráðinu benti
á, að nýja stjórnarskráin veitir almenningi ríkari rétt til aðildar að
ákvörðunum um umhverfismál en áður var. Lögreglan hélt að sér höndum.
Ómar Ragnarsson var ekki tekinn fastur. |
Til að gleðja Rússa og Kínverja ákvað ríkisstjórnin upp úr eins manns
hljóði að slíta samningaviðræðum við ESB, þótt það hafi ekkert land áður
gert, ekki einu sinni Sviss, sem hefur geymt sínar samningaviðræður við
ESB í salti síðan 1992. Þessi ákvörðun ríkisstjórnarinnar kom mörgum á
óvart, þar eð fulltrúar allra flokka á Alþingi höfðu marglofað því, að
þjóðin fengi að eiga síðasta orðið í ESB-málinu. Nú virtist það hafa
gleymzt, að þjóðin er yfirboðari þingsins. Nú var ekkert hald í
málskotsrétti forseta Íslands, þar eð ekki þurfti lagasetningu til að
slíta samningaviðræðunum. En nýja stjórnarskráin veitir 10%
atkvæðisbærra manna rétt til að bera mál undir þjóðaratkvæði og þá um
leið til að taka fram fyrir hendur Alþingis. Nú var safnað 50.000
undirskriftum, langt umfram tilskilið 10% lágmark. Í
þjóðaratkvæðagreiðslunni, sem var haldin innan árs skv. nýju
stjórnarskránni, var samþykkt að halda samningaviðræðum við ESB áfram.
Það var gert.
Þess var krafizt, að ríkisstjórnin segði af sér, þar eð hún hefði orðið
undir. Ríkisstjórnin taldi sér ekki skylt að víkja með vísan til þess,
að sjónarmið fyrri ríkisstjórnar í Icesave-málinu hefðu í tvígang orðið
undir í þjóðaratkvæði, án þess að ríkisstjórnin færi frá. Það var látið
gott heita, þar eð næstu þingkosningar myndu fara fram eftir nýjum
kosningalögum, sem tryggja jafnt vægi atkvæða og persónukjör.
Þannig tókst í krafti nýrrar stjórnarskrár að forða þrem slysum fyrsta
árið og leggja grunn að heilbrigðara andrúmslofti og stjórnmálalífi í
landinu. |