Erum við öll sek?
Þjóðir þurfa stundum í kjölfar mikilla atburða að horfast í augu við
sjálfar sig. Þjóðverjar stóðu frammi fyrir slíkri áskorun að lokinni
heimsstyrjöldinni 1945. Uppgjör þýzku þjóðarinnar þurfti að vera
tvíþætt. Annars vegar þurfti að rétta yfir stríðsglæpamönnum. Bandamenn
sáu um réttarhöldin í Nürnberg, þar sem fjöldi Þjóðverja fékk þunga
dóma. Hins vegar þurfti þýzka þjóðin að gera upp hug sinn og sakir við
sjálfa sig. Báru allir Þjóðverjar ábyrgð á Adolf Hitler og
grimmdarverkum nasista? Voru Þjóðverjar allir samsekir? Athuganir eftir
stríð bentu til, að aðeins um fjórðungur til þriðjungur Þjóðverja var á
bandi Hitlers og nasista, og voru þær niðurstöður í samræmi við
raunverulegt kjörfylgi nasista 1933. Mikill hluti þýzku þjóðarinnar var
andvígur nasistum. Minni hlutinn sá sér hag í að halda því fram, að
allir Þjóðverjar bæru ábyrgð, svo að enginn bæri ábyrgð. Ríkisstjórn
Þýzkalands eftir stríð axlaði skyldur gagnvart öðrum þjóðum með því að
afvopnast, deila fullveldi landsins með Frökkum og öðrum þjóðum á
vettvangi ESB, uppræta ítök nasista og setja sannleikann um stjórnartíð
þeirra í lögboðnar kennslubækur handa börnum og unglingum. Bandamenn
hjálpuðu einnig til við þennan hluta uppgjörsins. Með hjálp þeirra tókst
Þjóðverjum að endurheimta traust nágranna sinna og treysta samheldni
þjóðarinnar innbyrðis.
|
Þessi upprifjun kallast á við andrúmsloftið á Íslandi nú.
Stjórnmálamenn, bankamenn og aðrir vara við nornaveiðum; það er orðið,
sem þeir nota. Það má ekki persónugera hrunið, segja þeir. Þjóðin kaus
ríkisstjórnina, sem setti bankana í hendur manna, sem keyrðu þá í kaf,
svo að þjóðin er samsek, segja þeir. Þeir hafa augljósan hag af að
skella eigin skuld á aðra. |
Vitaskuld var helför nasista gegn gyðingum miklu alvarlegri glæpur en
hrunið. Nasistar náðu að vísu völdum með lýðræðislegum hætti 30. janúar
1933, en það var bara byrjunin. Flokkur þeirra varð stærsti
þingflokkurinn eftir haustkosningarnar 1932 með þriðjungsfylgi. Strax í
marz 1933 voru haldnar hlutdrægar kosningar, sem færðu nasistum þó ekki
nema tæpan helming kjörfylgisins. Haustið 1933 voru enn haldnar
kosningar, og þá var aðeins einn flokkur í framboði, flokkur nasista.
Glæpir nasista voru því klárlega framdir í skjóli einræðis og ofbeldis.
Hugmyndin um samsekt allra Þjóðverja og samábyrgð þeirra á glæpum
nasista átti því frá öndverðu við veik rök að styðjast. |
Öðru máli gegnir um Ísland. Haustið 2008, þegar bankarnir hrundu, var
við völd á Íslandi eins og endranær ríkisstjórn studd lýðræðislega
kjörnum meiri hluta á Alþingi, sem þjóðin ber ábyrgð á. Ábyrgð þjóðar á
rétt kjörnum stjórnvöldum í lýðræðisríki er skýr og einföld, og gildir
þá einu, hversu illa ríkisstjórnin hefur farið að ráði sínu. Borgurum
samfélagsins ber að greiða skatta og skyldur að lögum hvort sem þeir
styðja ríkisstjórnina eða ekki. Andúð á stjórnvöldum leysir menn ekki
undan skyldunni til að greiða skatta og virða lög. En ábyrgð þjóðar á
ríkisstjórn í lýðræðisríki felur ekki í sér sekt þjóðarinnar. Við berum
öll ábyrgð á bankahruninu og afleiðingum þess, hvort sem okkur líkar það
vel eða illa, og það er hörmulegt, en við erum ekki öll sek, því fer
víðs fjarri. |
Erlendir lánardrottnar sjá fram á að tapa allt að fjórfaldri eða
fimmfaldri landsframleiðslu Íslands á viðskiptum sínum við landið. Engin
hátekjuþjóð hefur áður bakað erlendum lánardrottnum svo mikið tjón miðað
við landsframleiðslu, og munu Íslendingar þó standa eftir skuldum
vafðir. Persónulegt gjaldþrot Björgólfs Guðmundssonar, aðaleiganda
Landsbankans, 750 milljónir Bandaríkjadala, jaðrar við heimsmet. Þá eru
ótaldar þungar búsifjar, sem bankahrunið hefur lagt á innlend heimili og
fyrirtæki, og skuldir ríkisins. Þetta gerðist fyrir vanrækslu, sem varla
er hægt að kalla annað en glæpsamlega, enda hefur frá byrjun leikið
sterkur grunur á, að lög hafi verið brotin í stórum stíl fyrir hrun.
Fjármálaeftirlitið hefur að undanförnu staðfest þennan grun fyrir sitt
leyti með því að vísa fjölmörgum málum til sérstaks saksóknara. Samt
hafa stjórnvöld að ýmsu öðru leyti slegið slöku við rannsókn hrunsins.
Þau hafa ekki að fyrra bragði sótzt eftir erlendri aðstoð við
rannsóknina, heldur hafa þau beinlínis streitzt gegn slíkri hjálp. Eva
Joly, ráðgjafi sérstaks saksóknara, heldur áfram að reka sig á veggi.
Hún ætti ef til vill að athuga, hvort þeir stjórnmálaflokkar, sem leiddu
hrunið yfir landið í eiginhagsmunaskyni, eða menn á þeirra vegum, hafi
gerzt sekir um refsiverða háttsemi.
Fordæmi er til. Saksóknari rússneska ríkisins lýsti Kommúnistaflokki
Rússlands sem glæpasamtökum fyrir rétti 1992.
|
Fréttablaðið, 20. ágúst 2009.