Gæti þetta gerzt hér?
Nú eru veður enn válynd í Færeyjum. Færeyskt efnahagslíf hrundi 1989-93
af svipuðum ástæðum og Ísland 2008. Allir, sem vettlingi gátu valdið,
voru inni á gafli – uppi í rúmi! – hjá öllum. Að sitja báðum megin borðs
var partur af lífsstíl valdastéttarinnar eins og
Eðvarð T. Jónsson
lýsir vel í bók sinni
Hlutskipti Færeyja
1994.
Þar birtast Færeyjar eins
skrípamynd af Íslandi.
Færeyinga greinir enn á um, að hversu miklu leyti þessi lýsing á lífinu
þar á við þjóðina eins og hún leggur sig frekar en valdastéttina eina.
Stjórnmálastéttin vill auðvitað, að allir séu taldir ábyrgir, svo að
tryggt sé, að enginn þurfi að sæta ábyrgð. Sú varð raunin. Í Færeyjum
var engin rannsóknarskýrsla skrifuð, ekkert saksóknaraembætti stofnað og
enginn ákærður, þótt vitað væri, að lög voru brotin í stórum stíl eins
og Hermann Óskarsson hagstofustjóri í Þórshöfn lýsti í fyrirlestri í
Háskóla Íslands mánuði eftir hrun 2008. |
Hrun Færeyja 1989-93 var mun dýpra en hrunið hér heima 2008.
Landsframleiðsla Færeyja dróst saman um þriðjung líkt og gerðist við
hrun kommúnismans í Sovétríkjunum um svipað leyti. Fimmti hver
Færeyingur flúði land, en helmingur hinna brottfluttu skilaði sér heim
aftur nokkru síðar. Hér heima minnkaði landsframleiðslan um 10% eftir
hrun, og fólksfjöldinn er nú aftur kominn upp undir 320.000, segir
Hagstofan. Hrun Færeyja varð þeim að ýmsu leyti til blessunar þrátt
fyrir erfiðleikana. Hrunið leiddi þeim fyrir sjónir spillinguna og
ábyrgðarleysið, sem leiddi m.a. af ríflegum fjárveitingum Dana til
Færeyja fyrir hrun. Færeyingar tóku sér tak. Þeir þiggja nú mun minni
fjárstuðning frá Dönum en áður. Reglum um sambandið milli
landsstjórnarinnar og lögþingsins í Þórshöfn var breytt, svo að þingmenn
verða nú að hætta á þingi, verði þeir ráðherrar, eins og mælt er fyrir
um í frumvarpi Stjórnarlagaráðs til nýrrar stjórnarskrár hér heima. Frá
1995 hafa 20 til 25 ráðherrar þurft að segja af sér vegna nýrra reglna
um ráðherraábyrgð. Frá 2008 hefur landið verið eitt kjördæmi til að
girða fyrir landlægan hrepparíg og sundrungu. Færeyingar tóku alvarlega
þörfina fyrir að draga úr líkum þess, að efnahagur landsins hryndi öðru
sinni m.a. vegna bresta í stjórnsýslunni.
|
Mörgum þótti meira þurfa til. Ríkisstjórn
Jafnaðarflokksins, Sambandsflokksins og Fólkaflokksins með 60%
atkvæða á bak við sig
lét semja frumvarp að stjórnarskrá handa Færeyjum 2009 og hét því að
halda þjóðaratkvæðagreiðslu um frumvarpið 2010. Frumvarpið er skínandi
gott. Kaflinn um auðlindir og umhverfi er til fyrirmyndar. Hann felur í
sér, að þjóðin á auðlindirnar og tekur gjald fyrir afnot þeirra eða
tryggir öllum jafnan aðgang að þeim og að umgengni við auðlindir og
umhverfi skal vera sjálfbær. Texti Færeyinga er í góðu samræmi við
auðlinda- og umhverfisákvæðin í frumvarpi Stjórnlagaráðs og hefur
mannréttindi í hávegum. |
Nú hljóp snurða á þráðinn. Ríkisstjórnin á bak við stjórnlagafrumvarpið
liðaðist í sundur, og við tók að loknum kosningum 2011 stjórn
Sambandsflokksins, Fólkaflokksins, Miðflokksins og Sjálfstýrisflokksins
með 57% atkvæða að baki sér. Nýja stjórnin hætti við að halda
þjóðaratkvæðagreiðsluna, sem fyrri stjórn hafði lofað.
Sambandsflokkurinn og Fólkaflokkurinn, sem sátu í báðum stjórnum, sneru
m.ö.o. við blaðinu. Sambandsflokkurinn er vanur slíkum vinnubrögðum.
Honum tókst ásamt jafnaðarmönnum að fá dönsk stjórnvöld til að ógilda
úrslit þjóðaratkvæðagreiðslu 1946, þar sem meiri hluti Færeyinga lýsti
sig fúsan til að slíta sambandinu við Danmörku, tveim árum eftir
sambandsslit Íslands og Danmerkur. Kannski Sambandsflokkurinn beri því
við nú, að danska stjórnin mótmælti færeyska stjórnlagafrumvarpinu á
þeirri forsendu, að það jafngildi sjálfstæðisyfirlýsingu, sem samrýmist
ekki áframhaldandi veru Færeyja í danska konungdæminu. Auðvelt hefði
verið að mæta þeirri aðfinnslu með einni málsgrein um óbreytt samband
landanna án þess að salta frumvarpið. |
Nú hefur spurzt, að stjórnarþingmenn í Þórshöfn hyggist bæta gráu ofan á
svart með því að leggja drög að afhendingu auðlindarinnar í hendur
útvegsmanna með íslenzka laginu í andstöðu við stjórnlagafrumvarpið frá
2009, í andstöðu við lögin, sem kveða á um, að fiskimiðin séu í eigu
þjóðarinnar líkt og hér heima, og í andstöðu við alþjóðleg
mannréttindaákvæði. Stjórnarandstaðan streitist gegn þessum áformum,
þ.m.t. Jafnaðarflokkurinn og Þjóðveldisflokkurinn. |
Ekki hafa Færeyingar lært mikið af óförum Íslands, ef þeir ætla að
afhenda útvegsmönnum kvótann á rússnesku silfurfati. |