Fæðukeðjan í bankanum
Orðavalið í tölvuskeyti stjórnarmanns í Glitni rétt fyrir hrun opinberar
hugarfarið í höfuðstöðvum bankans.
Stjórnarmaðurinn var að reyna að herja lán út úr bankanum, en rak sig á
óvænta fyrirstöðu og skrifaði bankastjóranum:
„Ég
skil ekki hvernig hlutirnir virðast breytast á leiðinni niður
fæðukeðjuna í bankanum ...“ Hvor þeirra átti að standa ofar í
fæðukeðjunni? Tölvuskeyti af þessu tagi sviptu hulunni af starfsháttum
Enrons í Bandaríkjunum, og stjórnendurnir sitja nú af sér þunga
fangelsisdóma.
Engum dylst, hver stóð efstur í keðjunni í Landsbankanum. Gjaldþrot
Björgólfs Guðmundssonar, aðaleiganda og yfirstjórnanda bankans, nam 750
milljónum Bandaríkjadala og virðist vera eitt stærsta persónulega
gjaldþrot í gervallri fjármálasögu heimsins. Ekkert gjaldþrot tekur
gjaldþroti Björgólfs fram að umfangi svo vitað sé, jafnvel í Texas, og
eru menn þar þó ýmsu vanir. Hver lánaði manninum alla þessa peninga?
Spurningin svarar sér sjálf: það var aðallega Landsbankinn. Af þessum
750 milljónum dala, sem Björgólfur þurfti að hlaupa frá, eru 500
milljónir dala ógreidd skuld við Landsbankann. Skellurinn lendir á
saklausu fólki innan lands og utan, fjölda fólks. |
Sumir telja hrun bankanna vera tæknilegt úrlausnarefni. Ég hef heyrt
hátt setta embættismenn lýsa þeirri skoðun. Þeim skjöplast. Hvað er
svona tæknilegt við kýrbein? Höfuðskýringin á hruni bankanna blasir nú
við. Eigendurnir létu greipar sópa með aðferð, sem bandaríski
afbrotafræðingurinn Willam Black lýsir vel í bók sinni
The Best Way to Rob a Bank Is to
Own One: How Corporate
Executives and Politicians Looted the S&L Industry (Bezta leiðin til
að ræna banka er að eiga banka: Hvernig forstjórar og stjórnmálamenn
létu greipar sópa um sparisjóðina). |
Von er á skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis um hrunið eftir fáeina daga,
fimm mánuðum á eftir upphaflegri áætlun. Skýrslan þarf að gera meira en
að svipta gagnsærri hulunni af almæltum tíðindum. Hún þarf að kortleggja
sambandið milli stjórnenda bankanna, stjórnmálamanna og embættismanna og
beina til sérstaks saksóknara ítarlegum lista með nöfnum þeirra, sem
ákæra þarf og dæma. Samt virðist mörgum gamla linkindin, sem Bjarni Benediktsson síðar forsætisráðherra lýsti í bréfi til bróður síns 1934 og taldi nauðsynlegt að uppræta, liggja í loftinu. Ríkisstjórnin hefur ekki talað skýrt um nauðsyn þess að koma lögum yfir þá, sem keyrðu bankana í kaf. Stjórnin hefur ekki tekið sér stöðu með fórnarlömbum bankanna gegn peningaryksugunum. Hún hefur heldur kosið að þegja og skýla sér bak við Rannsóknarnefnd Alþingis. Meðal margra fórnarlamba er 73 ára gömul kona, sem sendi forsætisráðherra og fjármálaráðherra bréf frá Bretlandi til að lýsa furðu sinni á linkind stjórnvalda gagnvart eigendum og stjórnendum bankanna. Hún hefur engin svör fengið frá ráðherrunum. Hún veit um fjárstuðning bankanna við flokkana fram að hruni. Hún kann að leggja saman tvo og tvo. |
Brýna nauðsyn bar strax í byrjun til að fá óháða erlenda menn til að
stýra uppgjörinu við hrunið frekar en innlenda embættismenn. Þetta var
nauðsynlegt til að girða fyrir tortryggni. Rannsóknarnefnd Alþingis
hirti ekki um að ræða við Björgólf Guðmundsson fyrr en eftir dúk og
disk. Nefndin hirti ekki heldur um að ræða við Sverri Hermannsson,
fyrrum bankastjóra Landsbankans, þótt hann hafi margsinnis, nú síðast
hér í Fréttablaðinu 17.
febrúar, borið þungar sakir á fyrrum framkvæmdastjóra
Sjálfstæðisflokksins og hægri hönd Björgólfs í bankanum. Eftir á að koma
í ljós, hverja menn aðra úr efstu lögum bankanna rannsóknarnefndin kaus
að ræða ekki við. Ekki verður séð, að nefndin hafi nýtt sér heimild í
lögum til að draga viðmælendur sína til ábyrgðar á ósönnum framburði svo
sem tíðkast í störfum bandarískra þingrannsóknarnefnda og skiptir sköpum
þar og gæti einnig gert það hér.
Þjóðverjar stýrðu ekki sjálfir réttarhöldunum í Nürnberg 1945-46. Það
gerðu sigurvegarar styrjaldarinnar. Þeir komu að vísu ekki lögum yfir
alla sökudólga, langt frá því, en þeir menn fengu þunga dóma, sem mest
höfðu til saka unnið. Þýzkaland reis á fáeinum árum úr rústum stríðsins,
sýndi auðmýkt og ávann sér á ný virðingu umheimsins, ekki sízt með
framgöngu sinni á vettvangi ESB. Íslendingar hefðu með líku lagi þurft
að fela útlendingum rannsókn hrunsins. Ef gamla kærulausa linkindin
sigrar, eiga Íslendingar á hættu að hrapa enn frekar í áliti umheimsins.
Þá verða góð ráð dýr. |
Fréttablaðið, 8. apríl 2010.