Minning Jóns forseta
Á
þessum degi var fæðingar Jóns Sigurðssonar forseta fyrst minnzt
opinberlega 1907. Það ár kom til landsins
Jón forseti, fegursta og
stærsta fiskiskip, sem Íslendingar höfðu þá eignazt, en Thor Jensen og
félagar hans í Alliance létu smíða skipið á Englandi og héldu því úti
til þorskveiða og létu salta fiskinn um borð. Eftir það héldu
íþróttasamtök upp á afmælisdag Jóns. Fyrst var haldinn almennur þjóðminningardagur á aldarafmæli Jóns Sigurðssonar 1911, og var Háskóli Íslands þá settur í fyrsta sinn. Veðrið var gott þennan dag, glatt sólskin og hægur blær af hafi. Hátíðin hófst að morgni á Sal Menntaskólans í Reykjavík. Rektor Menntaskólans, Steingrímur Thorsteinsson, skáldið, minntist þess, að Salur skólans var þingsalur alla alþingistíð Jóns Sigurðssonar, og var sungið kvæði eftir Steingrím. Kennarar og lærisveinar Menntaskólans færðu skólanum að gjöf málverk Þórarins B. Þorlákssonar af Jóni, og hangir það enn á sínum stað á Sal. Iðnsýning var opnuð í tilefni dagsins, og var þar sýndur heimilisiðnaður, smíðagripir og fleira. |
Setning Háskólans hófst á hádegi í Alþingishúsinu. Klemens Jónsson
landritari og Björn M. Ólsen, fyrsti rektor Háskólans, fluttu ræður, og
var sungið Háskólaljóð Þorsteins Gíslasonar ritstjóra við lag Björns
Kristjánssonar skósmiðs, alþingismanns, bankastjóra Landsbankans,
söngfræðings og síðar ráðherra; um hann segir í
Alþingismannatali: „Hafði
síðan sérstök eftirlaun ævilangt.“ Síðan fór fjölmenn skrúðganga frá
þinghúsinu að leiði Jóns í Hólavallarkirkjugarðinum við Suðurgötu, og
var þar leikið lag Sveinbjörns Sveinbjörnssonar við lofsöng séra
Matthíasar frá 1874, Ó guð vors lands. (Við fullveldistökuna 1918 var
lagið leikið sem þjóðsöngur Íslendinga og æ síðan.)
Skírnir, tímarit Hins íslenzka
bókmenntafélags, kom út tvíefldur á afmælisdaginn, helgaður ævi og
starfi Jóns. Á fæðingarstað Jóns á Hrafnseyri við Arnarfjörð var sungið
Minningarljóð Hannesar Hafstein við lag Sigfúsar Einarssonar. Í
september 1911 var afhjúpaður minnisvarði Jóns forseta fyrir framan
stjórnarráðið eftir Einar Jónsson, og var varðinn síðan fluttur á
Austurvöll 1931 og hefur staðið þar síðan. Frá stofnun lýðveldisins á
Þingvöllum 17. júní 1944 hefur þessi dagur verið þjóðhátíðardagur
Íslendinga. |
Í formála að úrvali úr ræðum og ritgerðum Jóns forseta 1944 segir
Vilhjálmur Þ. Gíslason síðar útvarpsstjóri: „Jón Sigurðsson var mestan
hluta ævi sinnar kröfuharður andófsmaður. Hann sagði eitt sinn sjálfur,
að hann ætti bezt heima „á oppositionsbekknum“ ... Hann var óbilandi „agitator“.
Um það eru bréf hans bezt vitni. Og merkasta einkenni bréfa hans er
einmitt áróðurinn og fortölurnar, hinar látlausu brýningar og nudd. Bréf
hans virðast flest vera hripuð í flýti. Þau eru oftast nær formlaus, að
jafnaði ekki skemmtileg út af fyrir sig. ... Ritgerðir hans eru mjög
merkilegar. Þær eru vandaðar og fullar af fróðleik og af skarpri
skynsemi, skrifaðar af skynsemi og fyrir skynsemi, en mjög sjaldan fyrir
tilfinningarnar, og var það að vísu alveg í samræmi við alla stjórnmála-
og lífsskoðun Jóns Sigurðssonar.“ |
Ritsmíðar Jóns voru einn lykillinn að lýðhylli hans. Rómaðir mannkostir
hans lögðust auk annars á sömu sveif. Lúðvík Kristjánsson rithöfundur
hefur kortlagt fyrirgreiðslu Jóns í Kaupmannahöfn við mikinn fjölda
fólks úr öllum sveitum landsins. Til eru sex þúsund sendibréf til Jóns
frá 870 bréfriturum. Mörg bréfanna eru frá bláókunnugu fólki, sem biður
Jón að hjálpa sér við að kaupa plóg eða sjal eða brjóstnál eða
eyrnalokka eða öngla eða koma úri í viðgerð eða ættingja á spítala og
þannig áfram þindarlaust eins og Lúðvík Kristjánsson rekur í bók sinni
Á slóðum Jóns Sigurðssonar
(1961). Til þessara snúninga virðist Jón hafa varið ómældum tíma án þess
að telja það eftir sér. Vilhjálmur Þ. Gíslason segir: „Hann var safnari
og grúskari á þjóðlegan fróðleik. ... Hefur það sennilega einmitt átt
mikinn þátt í því, hversu vel hann var við alþýðuskap á ýmsa lund og
átti ítök út um allar sveitir, þó að annars væri hann greinilegur
fyrirmaður.“ Jón og Ingibjörg kona hans bjuggu alla tíð við óviss kjör.
„Ég er vanur fátækt,“ skrifar hann 1874. Séra Matthías Jochumsson,
ritstjóri Þjóðólfs, lýkur frásögn sinni um andlát Jóns Sigurðssonar 1879 og
útför hans og Ingibjargar 1880 með þessum orðum: “Grát þú, fósturjörð,
þinn mikla son, en vert þú vonglöð, þú ólst hann sjálf og áttir!” Við
útförina var sungin sorgarkantata eftir Ólöfu Finsen landshöfðingjafrú
við texta séra Matthíasar. |
Fréttablaðið, 17. júní 2010.