Ef Moskva væri kona, þætti mörgum hún vera hið mesta glæsikvendi. Borgin
skartar fagurlega lýstum byggingum og minnismerkjum í vetrarmyrkrinu
líkt og Liz Taylor og Za Za Gabor báru glitrandi skartgripi. Anita
Ekberg, sem er nýfallin frá á níræðisaldri, þurfti enga skartgripi. Um
hana sagði Bob Hope, að foreldrar hennar hefðu fengið Nóbelsverðlaun í
arkitektúr. Nema þegar ég horfi á hluta herlegheitanna út um
hótelgluggann minn hér í Moskvu – Kreml og dómkirkju Krists frelsara –
velti ég því fyrir mér, hvort borgin hafi skartað svo fögrum sýnum á
fyrri tíð, t.d. á Stalínstímanum 1924-1953. Mér er það til efs. Þeim fer
fækkandi, sem sáu hvort tveggja með eigin augum. Verzlunargatan
Tverskaya skartar nú fínni búðum en nokkru sinni fyrr og keppir við
Laugaveginn eða a.m.k. Skólavörðustíginn og Madison Avenue.
|
Loftið er samt lævi blandið innan um allt ríkidæmið, sem blasir við
augum gestsins í hjarta Moskvu. Rúblan er nýfallin um helming. Fyrir
1000 rúblur fengust fyrir nokkru 30 Bandaríkjadalir, en nú fást bara
fimmtán. Þetta þýðir, að vinnulaun hafa skroppið saman um helming í
dölum talið. Rússar taka eftir því. Það er sárasjaldgæft, að gjaldmiðill
lands taki svo djúpa dýfu í einu vetfangi, en það hefur nú gerzt í
Rússlandi líkt og gerðist á Íslandi 2007-2008. Íslendingar tóku eftir
högginu, þótt úthald athyglinnar hefði mátt vera meira.
|
Hvers vegna féll rúblan um helming? Því veldur einkum tvennt.
Efnahagsþvinganir Bandaríkjanna og ESB vegna íhlutunar Rússa í Úkraínu
bíta hvað sem hver segir eins og Dmitry Medvedev forsætisráðherra
viðurkenndi fúslega á fundi (Gaidar Forum), sem ég sat í vikunni.
Medvedev lagði ríka áherzlu á traust. Traust, sagði hann, er ein
mikilvægasta undirstaða nútímaefnahagslífs. Menn verða að geta treyst
hver öðrum. Og til þess að það sé hægt, verða menn að verðskulda traust.
Hann sagði það ekki, en það lá í orðunum: Það stoðar lítt að standa uppi
trausti rúinn og biðja um traust eins og ekkert hafi í skorizt.
|
Hin höfuðskýringin á falli rúblunnar er hrap olíuverðs um helming á
heimsmarkaði að undanförnu. Tekjur á mann og lífskjör í Rússlandi eru
nátengd olíuverði, þar eð Rússar hafa ekki hirt um að reisa skjólveggi
líkt og Norðmenn milli sveiflugangs á olíumörkuðum og ástandsins í
þjóðarbúskapnum heima fyrir. Norska krónan hefur til samanburðar fallið
um sjöttung gagnvart Bandaríkjadal í kjölfar hrapandi olíuverðs. Þess
sér nú stað, hversu Norðmenn hafa gætt þess að halda olíuauði sínum í
hæfilegri fjarlægð frá gangi efnahagsmála frá ári til árs. Olíusjóður
Norðmanna nemur nú andvirði lítillar íbúðar á hvert mannsbarn í Noregi.
|
Einn ráðherrann í ríkisstjórn Pútíns barði sér á brjóst á fundinum og
uppskar fögnuð sumra áheyrenda, þegar hann sagði: Það verður upplit á
þeim, þegar olían hækkar aftur upp í 100 dali fatið! Forsætisráðherrann
mælti af meiri hyggindum. Hann sagði: Við skulum ekki bíða þess, að
olían hækki aftur í verði, heldur skulum við halda áfram umbótastarfinu,
því að við eigum enn svo margt ógert á þeim vettvangi. Hann virðist líta
svo á, að lækkun olíuverðs að undanförnu sé að miklum líkindum varanleg,
og ekki bara það: Olíuverð gæti átt eftir að lækka enn meira, t.d. niður
í 40 dali fatið. Því veldur m.a. bandarísk tækninýjung frá 2008, sem
hefur ekki farið hátt. Þar vestra hefur mönnum lærzt að bora lárétt
eftir olíu og skyldum orkugjöfum frekar en lóðrétt (þetta er kallað
hydrolic fracturing eða einfaldalega fracking á ensku). Við þetta hefur
framboð olíu og skyldra efna aukizt svo mjög, að verðið á olíu hlaut að
hrapa. Takist öðrum þjóðum að beita sömu tækni og Bandaríkjamönnum, mun
það leiða af sér enn frekari straumhvörf í orkumálum. Aðferðin er að
vísu umdeild af umhverfisástæðum. Frakkar hafa t.d. lagt blátt bann við
henni og kjósa heldur að halda sig við gamalgróin kjarnorkuver. Rafbílar
gætu í ljósi þessarar óvæntu þróunar þurft að bíða aukinnar útbreiðslu
enn um hríð.
|
Reynist lækkun olíuverðs á heimsmarkaði varanleg, gæti gengisfall
rúblunnar einnig reynzt varanlegt eins og raunin varð á um íslenzku
krónuna eftir hrun. Lægra gengi rúblunnar gæti reynzt Rússum vel. Við
gamla genginu tókst Rússum varla að framleiða neitt, sem aðrir þjóðir
kæra sig um að kaupa, nema helzt hráefni og vopn. Á venjulegu íslenzku
heimili er yfirleitt ekki að finna neinar rússneskar vörur nema kannski
vodkaflösku í frystinum. Á venjulegu rússnesku heimili er yfirleitt ekki
heldur að finna neinn íslenzkan varning nema
kannski lopapeysu. Þetta gæti átt eftir að breytast í báðum löndum í
krafti nýs gengis gjaldmiðlanna. Hrun getur haft æskilegar
aukarverkanir, sé vel á málum haldið. |