Rússar í góðum gír
Þegar ég kveikti á sjónvarpinu seint um kvöld í vetur leið, þetta var í
janúar, heyrði ég viðtal við dómsmálaráðherrann.
Tvö verkefni ráðuneytisins eru öðrum brýnni, sagði hann. Annað er að
treysta sjálfstæði dómstólanna, svo að fólkið í landinu geti borið
traust til þeirra. Hitt er að berjast gegn spillingu.
Hvar var ég staddur? Viltu gizka? Ég var í Moskvu.
Dómsmálaráðherra Rússlands heitir Aleksandr Konovalov. Hann er rösklega fertugur að aldri og er doktor í lögum frá háskólanum í Sankti Pétursborg. Þar tók Vladimir Pútín forsætisráðherra lagapróf á sínum tíma og einnig Dimitri Medvedev forseti. Lærimeistari allra þriggja hét Anatoly Sobchak, frjálslyndur lagaprófessor, síðar borgarstjóri í Sankti Pétursborg. Hann leit svo á, að eina færa leiðin til að ljúka því ætlunarverki Péturs mikla keisara að leiða Rússland inn í nútímann væri að gera landið að fullburða réttarríki. Hann vildi byggja landið með lögum. Nemendur Sobchaks eru sama sinnis eins og Guðmundur Ólafsson hagfræðingur hefur oft lýst í útvarpi, en hann er manna fróðastur hér heima um Rússland. Þegar Pútín velgir Vesturlöndum undir uggum með ýmsum grófum ummælum, er hann að reyna að róa kjósendur heima fyrir, segir Guðmundur. Pútín er eins og Svíar voru, þegar munnar stjórnmálamannanna vissu í vestur, en byssukjaftarnir í austur. |
Ég var sem sagt í Moskvu í janúar, borgin er falleg að frostköldu
vetrarlagi, og hlýddi þar á mál nokkurra helztu samstarfsmanna Medvedevs
og Pútíns í efnahagsmálum. Fundurinn var haldinn í efnahagsstofnun, sem
Jegor Gaidar, fyrsti forsætisráðherra Rússlands eftir hrun kommúnismans,
stýrði til dauðadags í desember 2009. Ég hitti hann í Moskvu fyrir átta
árum, en nú er hann allur fyrir aldur fram. Hann var hægri hönd Jeltsíns
forseta fyrstu þrjú árin eftir hrun, 1991-94. Honum var falið, og tókst,
að leggja grunninn að gríðarlegum umskiptum, sem hafa skilað sér með
rykkjum og skrykkjum til fólksins í landinu við erfiðar aðstæður.
Gaidar þurfti að gefast upp fyrir gömlum kommúnistum og þjóðernissinnum
á þingi og fyrir spilltum og gráðugum sérhagsmunaseggjum, sem tókst að
sölsa undir sig umtalsverðan hluta af eignum ríkisins. Hann sagði þá af
sér embætti, en hann hélt baráttunni áfram ótrauður innan þings og utan
og náði umtalsverðum árangri. Kaupmáttur þjóðartekna á mann í Rússlandi
er nú um tvisvar sinnum meiri en hann var, þegar Kommúnistaflokkurinn
skildi við 1991. Meðalævi Rússa hefur lengzt um fjögur ár frá 2003 og er
nú 69 ár, heilu ári lengri en 1991. Rússar eru að rétta úr kútnum. En
spillingin er lífseig, og lífshættuleg. |
Fjármálaráðherrann í ríkisstjórn Pútíns er fimmtugur hagfræðingur og
heitir Aleksey Kudrin. Hann flutti langa ræðu á fundinum um þörfina
fyrir að reisa skorður við hollenzku veikinni til að tryggja, að
olíuauður Rússlands verði ekki til vandræða líkt og víða annars staðar í
olíulöndum. Hann átti við, að sambúðin við svo mikla olíu í iðrum
Rússlands hneigist til að hækka gengi rúblunnar upp fyrir eðlileg mörk
og skaða með því móti aðra útflutningsatvinnuvegi og innlendan iðnað og
þjónustu. Hann lýsti einnig næmum skilningi á nauðsyn þess, að arðurinn
af olíulindunum skili sér til rétts eiganda, rússnesku þjóðarinnar,
frekar en til rummunga. Þannig tala ráðamenn í Moskvu. Þetta var eins og
vor um miðjan vetur. |
Ísland vantar dómsmálaráðherra, sem talar um nauðsyn þess að
treysta sjálfstæði dómstólanna og beitir sér af alefli fyrir því og
berst gegn spillingu. Ísland vantar einnig fjármálaráðherra, sem
viðurkennir nú, þótt seint sé, að útvegsmenn hefðu frá upphafi átt að
greiða fyrir afnotin af sameiginlegri auðlind þjóðarinnar frekar en
þiggja kvótann án endurgjalds og veðsetja síðan sameignina upp í rjáfur
eins og rakin fífl.
Ríkisstjórn Íslands heldur áfram að mylja undir útvegsmenn, nú síðast
með ókeypis úthlutun á nýjum makrílkvóta í stað þess að afla ríkissjóði
tekna, sem hann sárvantar, með því að selja kvótann á uppboði.
Ríkisstjórnin heldur uppteknum hætti, þótt Mannréttindanefnd Sameinuðu
þjóðanna hafi nú til umfjöllunar fráleita málsvörn fyrri ríkisstjórnar
fyrir ítrekuð mannréttindabrot. Ætla verður, að Þjóðareign, nýstofnuð
samtök um auðlindir í almannaþágu, fræði Mannréttindanefndina um
skjalfest fjárframlög útvegsmanna til stjórnmálaflokkanna. Rússum hélzt
ekki vel á einkavæðingu ríkisfyrirtækja á sínum tíma, rétt er það. En
ríkisstjórn Jeltsíns forseta mátti þó eiga, að hún seldi útvegsmönnum
aðgang að rússneskum fiskimiðum frekar en að úthluta honum ókeypis.
|
Fréttablaðið, 27. maí 2010.