Náðun og sakaruppgjöf
Í 13. grein
stjórnarskrárinnar frá 1944 segir svo: „Forsetinn lætur ráðherra
framkvæma vald sitt.” Sú skoðun heyrðist í fjölmiðladeilunni 2004, að í
þessum orðum fælist, að forsetinn gæti ekki neytt málskotsréttar síns
skv. 26. grein stjórnarskrárinnar nema með undirskrift ráðherra, en
þeirri skoðun var hafnað. Nær allir lögfræðingar og aðrir líta svo á, að
forsetinn fari einn og óstuddur með málskotsréttinn. Ákvæðið um, að
forsetinn láti ráðherra framkvæma vald sitt, felur eftir þessum
skilningi í sér, að ráðherrann sér um framkvæmd
þjóðaratkvæðagreiðslunnar, ekki forsetinn. |
Í 29. grein stjórnarskrárinnar frá 1944 segir svo: „Forsetinn getur
ákveðið, að saksókn fyrir afbrot skuli niður falla, ef ríkar ástæður eru
til. Hann náðar menn og veitir almenna uppgjöf saka.” Hvað þýðir það í
þessu viðfangi ákvæði 13. greinar um, að forsetinn láti ráðherra
framkvæma vald sitt? Þýðir það, að forsetinn þurfi samþykki ráðherra til
að saksókn fyrir afbrot skuli falla niður og til að náða menn og veita
þeim almenna uppgjöf saka? Flestir munu líta svo á þrátt fyrir orðanna
hljóðan. Eða þýðir ákvæðið, að ráðherra skuli sjá til þess, að föngunum
sé sleppt út, svo að forsetinn þurfi ekki að standa í því? |
Reynslan af fjölmiðlamálinu 2004 sýnir, að hugsanlega gæti komið upp
ágreiningur um þetta atriði, þar eð gildandi stjórnarskrá er óskýr.
Sumir kynnu e.t.v. að túlka orð hennar svo, að forsetinn fari einn með
náðunarvaldið líkt og málskotsréttinn. Aðrir munu segja, að forsetinn
þurfi samþykki ráðherra til að náða menn. Árni Johnsen alþingismaður
sótti um uppreist æru til dómsmálaráðherra, sem samþykkti hana ásamt
þrem handhöfum forsetavalds í fjarveru forsetans. Samt er ekki hægt að
útiloka þann möguleika, að forsetinn telji sig geta náðað menn og gefið
þeim upp sakir upp á sitt eindæmi skv. orðanna hljóðan í gildandi
stjórnarskrá. Þar er efinn. |
Frumvarp Stjórnlagaráðs tekur af öll tvímæli um þetta atriði. Þar segir
í 85. grein: „Forseti Íslands getur náðað menn og veitt almenna uppgjöf
saka að tillögu ráðherra.” Forseti Íslands fer því ekki einn með
náðunarvaldið. Ráðherra gerir tillögu að náðun og sakaruppgjöf, en
tillaga ráðherra þarfnast staðfestingar forseta til að taka gildi. Hér
er því engri óvissu til að dreifa og ekkert rúm fyrir ágreining.
|
Frumvarp Stjórnlagaráðs til nýrrar stjórnarskrár skýrir og afmarkar
hlutverk forseta Íslands. Hlutverk forsetans er hættulega óljóst í
gildandi stjórnarskrá. Þetta skiptir máli m.a. vegna þess, að vænta má
dóma yfir bankamönnum og öðrum ábyrgðarmönnum hrunsins á næsta
kjörtímabili forseta. Umboðsmaður forseta Íslands, Ólafs Ragnars
Grímssonar, er enginn annar en Sigurður G. Guðjónsson hrl., sem hefur
m.a. haft uppi harða gagnrýni á Fjármálaeftirlitið, sérstakan saksóknara
og Evu Joly, sem kom fótunum undir embætti sérstaks saksóknara auk
annars. |
Frumvarp Stjórnlagaráðs miðar að því að treysta valdmörk og mótvægi og
reisa eldveggi innan stjórnkerfisins. Í þessu felst, að þættir
ríkisvaldsins þurfa að skarast til að efla gagnkvæmt aðhald og eftirlit
og girða fyrir valdníðslu. Einmitt þess vegna getur forsetinn skv.
frumvarpinu ekki „náðað menn og veitt þeim
almenna uppgjöf saka“ upp á sitt
eindæmi, heldur aðeins að tillögu ráðherra. |
Öðru máli gegnir um málskotsréttinn, enda veitir hann forsetanum ekkert
úrslitavald, heldur aðeins færi á að skjóta þingmálum til þjóðarinnar,
sem hefur æðsta úrskurðarvald í öllum sínum málum og er því yfirboðari
Alþingis. Enda segir í 2. grein frumvarps Stjórnlagaráðs: „Alþingi fer
með löggjafarvaldið í umboði þjóðarinnar.” Til samanburðar segir í 2.
grein gildandi stjórnarskrár: “Alþingi og forseti Íslands fara saman með
löggjafarvaldið.” Takið eftir muninum.
|