Fyrir opnum tjöldum
Stjórnlagaráð ákvað að bjóða fólkinu í
landinu að hjálpa til við smíði stjórnarskrárfrumvarpsins á netinu, og
vakti sú aðferð talsverða athygli í erlendum fjölmiðlum (sjá t.d.
Guardian, 9. júní 2011). Þessi ákvörðun reyndist vel, og ekki fylgdu
henni nein vandkvæði. Vitað var, að venjulegt fólk víðs vegar um
samfélagið hafði mikinn áhuga á endurskoðun stjórnarskrárinnar. Annars
hefðu varla 522 Íslendingar boðið sig fram til stjórnlagaþings.
Þjóðfundinn 2010 sóttu 950 manns valin af handahófi úr þjóðskrá. Allir
Íslendingar 18 ára og eldri höfðu sama tækifæri til að veljast til setu
á þjóðfundinum. |
Vinna Stjórnlagaráðs fór fram í þrem áföngum. Fyrst setti ráðið á vef
sinn ýmsar bráðabirgðatillögur, sem verið var að vinna að. Eftir að hafa
þegið fjölmargar uppástungur og athugasemdir utan úr samfélaginu birti
ráðið nýja gerð tillagnanna tveim til þrem vikum síðar. Að lokum voru
frumvarpsdrögin í heild rædd fram og aftur, og var þá sett saman
lokagerð, sem Stjórnlagaráð greiddi atkvæði um. Sérhver grein var
samþykkt með miklum meiri hluta atkvæða og oft mótatkvæðalaust. Eftir að
greinar um kosningakerfi og náttúruauðlindir höfðu verið samþykktar,
brauzt út lófaklapp. Frumvarpið í heild var samþykkt einum rómi með 25
atkvæðum gegn engu. |
Umferðin um vefsetur Stjórnlagaráðs vitnar um áhuga almennings. Ráðinu
bárust 323 formleg erindi og ráðsfulltrúar ræddu þau öll og svöruðu
þeim. Þá voru 3.600 athugasemdir gerðar við ýmis ákvæði á vefsetrinu.
Nær allar tillögur og athugasemdir komu að einhverju gagni. Ef enginn
gerði athugasemd, var það einnig á sinn hátt gagnlegt, því þá hlutum við
að álykta, að við værum e.t.v. á réttri leið. Allur ótti um, að vefsetur
Stjórnlagaráðs myndi drukkna í lítilsverðu þrefi og stappi reyndist
ástæðulaus. Allt þetta stangaðist á við þær venjur, sem marka íslenzka
stjórnmálamenningu og geta varla talizt sitja í háum söðli. Af hverju
slapp Stjórnlagaráð við þá pytti alla? Ein ástæðan kann að vera sú, að
umræður í Stjórnlagaráði einkenndust af gagnkvæmri kurteisi og virðingu.
Stjórnlagaráðsmenn báru djúpa virðingu fyrir því verkefni, sem þeim
hafði verið falið af þjóð og þingi. Sjónvarpað var beint á netinu frá
fundum ráðsins og yfirleitt horfðu 150-450 manns á útsendingarnar. Meira
en 50 viðtöl við ráðsfulltrúa og aðra, sem við sögu komu, voru settar á
YouTube, og í lok árs 2011 hafði verið horft á þau 5.000 sinnum. Á
vefsetri Stjórnlagaráðs má enn finna mikið af upplýsingum um starf
ráðsins. Þá voru símanúmer og netföng stjórnlagaráðsmanna birt
opinberlega, og allir gátu haft samband við þá. Stjórnlagaþing
Bandaríkjanna kom saman fyrir luktum dyrum í Fíladelfíu 1787. |
En þótt Stjórnlagaráð hafi lagt mikið upp úr samvinnu við almenning, var
einnig stöðugt leitað ráða hjá sérfræðingum. Skýrsla stjórnlaganefndar
var sneisafull af góðum hugmyndum. Margir sérfræðingar, bæði
lögfræðingar og aðrir, komu fyrir ráðið eða skiluðu skriflegum
greinargerðum. Ráðið gat að sjálfsögðu ekki leitað til allra
sérfræðinga, sem til greina komu, en allir, sem vildu leggja eitthvað
til málanna, gátu gert það. Ákveðið var að fylgja ekki þeirri reglu
nefnda Alþingis að bjóða til fundar fulltrúum hagsmunaaðila, en þeir
höfðu þó sama aðgang að ráðinu og aðrir, gátu sótt fundi þess og lagt
fram óskir, fyrirspurnir og ábendingar. Þetta var mikilvægt til að
tryggja, að allir sætu við sama borð, en sérhagsmunahópar á Íslandi hafa
ekki vanizt því. Fulltrúar þeirra gáfu sig ekki fram við Stjórnlagaráð. |
Enn heyrast ábendingar um einstök efnisatriði frumvarpsins frá fólki,
sem hirti ekki um að gefa sig fram, meðan vinnan stóð yfir. Þær eru of
seint fram komnar. Frumvarpinu var lokað, þegar það var afhent forseta
Alþingis 29. júlí 2011. Þjóðin kýs um frumvarpið 20. október. Aldrei
fyrr hefur kjósendum gefizt færi á að slá fleiri keilur í einu kasti:
jafnt vægi atkvæða, auðlindir í þjóðareigu, frjáls aðgangur að opinberum
upplýsingum, beint lýðræði, óspilltar embættaveitingar, traust valdmörk
og mótvægi – allt þetta á einu bretti og meira til. Kjósum. Spúlum
dekkið. |