20. október
Þjóðin hefur fellt sinn dóm um frumvarp til nýrrar stjórnarskrár.
Þjóðaratkvæðagreiðslan 20. október tekur af tvímæli um, að tveir þriðju
hlutar kjósenda (67%) styðja frumvarpið, 83% styðja auðlindir í
þjóðareigu, 78% styðja persónukjör, 67% styðja jafnt vægi atkvæða, og
73% styðja beint lýðræði, svo að tiltekið hlutfall atkvæðisbærra manna
geti krafizt þess, að mál fari í þjóðaratkvæðagreiðslu. Niðurstaðan
getur varla skýrari verið. |
Ekkert af þessu þarf að koma á óvart. Frumvarp Stjórnlagaráðs er
sprottið af þjóðfundinum 2010. Þjóðfundurinn speglaði þjóðarviljann og
lagði línurnar um anda og áherzlur nýrrar stjórnarskrár og um inntak
nokkurra helztu ákvæða hennar svo sem um auðlindir í þjóðareigu, jafnt
vægi atkvæða, persónukjör og beint lýðræði. Hví skyldi þjóðin snúast
gegn frumvarpi, sem er sprottið af henni sjálfri? Hví skyldi fólkið í
landinu snúast gegn sjálfu sér?
Afstaða kjósenda til ýmissa helztu ákvæða frumvarps Stjórnlagaráðs hefur
legið fyrir um langa hríð. DV
kannaði hug stjórnlagaþingsframbjóðenda til þessara spurninga og margra
annarra. Svör þeirra voru birt haustið 2010 og voru í fullu samræmi við
úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar á laugardaginn var. Allir máttu vita,
hvernig landið liggur. Enginn þurfti að ganga að því gruflandi. Hér er
e.t.v. að finna ástæðuna til þess, að engar skoðanakannanir voru birtar
í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Kannski sáu fylgjendur
frumvarpsins ekki ástæðu til að láta gera könnun, ef þeir töldu sig
vita, hverju kjósendur myndu svara. Ef andstæðingar frumvarpsins létu
kanna málið, sáu þeir sér sennilega ekki hag í að birta niðurstöðurnar. |
Allt þetta þarf að hafa í huga, þegar mat er lagt á málflutning þeirra, sem reyna nú að kasta rýrð á ótvíræðan dóm þjóðarinnar. Rök þeirra eru vandræðalega veik. Sumir þeirra segja fullum fetum, að þjóðaratkvæðagreiðslan sé „merkingarlaus“, að því er virðist án þess að skeyta um, að með því eru þeir að kasta blautri tusku framan í kjósendur. Tilraunir fáeinna alþingismanna til að slá eign sinni á ógreidd atkvæði þeirra kjósenda, sem sátu heima, dæma sig sjálfar og eru dregnar sundur og saman í háði hringinn í kringum landið, enda sýndi skoðanakönnun MMR í apríl 2012, að stuðningur við frumvarpið er hinn sami (2/3) meðal allra og reyndist vera í atkvæðagreiðslunni: þeir sem heima sátu skiptast með sama hætti og þeir sem kusu. Sumum andstæðinganna þykir eiga vel við að nota orðið „skrílræði“ um eitt lýðræðislegasta stjórnarskrárferli, sem saga heimsins kann frá að greina eins og erlendir sérfæðingar og aðrir hafa tekið eftir og auglýst. Þá eru ótaldar ýmsar rangfærslur um frumvarpið, eins og t.d. sú fullyrðing, að frumvarpinu sé ætlað að smeygja Íslandi inn í ESB. Þessu er þveröfugt farið. Gildandi stjórnarskrá frá 1944 veitir enga vörn gegn einhliða ákvörðun Alþingis um að leiða Ísland inn í ESB. Frumvarp Stjórnlagaráðs tryggir, að Ísland gengur því aðeins inn í ESB, að þjóðin samþykki ráðahaginn í bindandi þjóðaratkvæði og þá upp á þau býti, að framsal ríkisvalds sé ávallt afturkræft. |
Þau sjónarmið, sem einstakir alþingismenn halda nú fram um æskilegar
efnisbreytingar á frumvarpi Stjórnlagaráðs, hafa öll komið fram áður og
verið rædd í þaula. Alþingi lá ásamt mörgum lögfræðingum og öðrum yfir
frumvarpinu í átta mánuði, áður en það beindi spurningum sínum og
ábendingum til Stjórnlagaráðs snemma á þessu ári. Í svari sínu til
Alþingis lýstu fulltrúar í Stjórnlagaráði nokkrum valkostum um nýtt
orðalag á fáeinum ákvæðum frumvarpsins til frekari skýringar, án þess að
um verulegar efnisbreytingar væri að ræða. Þeir, sem halda nú fram nýjum
tillögum, jafnvel eftir að þjóðin hefur kveðið upp sinn dóm, eru eins og
verktakinn, sem birtist með nýtt tilboð löngu eftir að útboðsfresturinn
er runninn út og ætlast til að vera tekinn alvarlega. Alþingi setti
málið á sínum tíma í vel afmarkað ferli með skýrri tímatöflu. Því ferli
þurfa alþingismenn og aðrir að una. Engum má líðast að brjóta reglurnar
eða breyta þeim í miðjum leik. „Alþingi er á reynslutíma hjá þjóðinni“,
sagði forsætisráðherra eftir atkvæðagreiðsluna. Slík auðmýkt gagnvart
fólkinu í landinu á vel við eins og sakir standa. |
Barátta andstæðinganna gegn nýrri stjórnarskrá, jafnvel eftir að þjóðin
hefur lýst eindregnum vilja sínum til að ný stjórnarskrá nái fram að
ganga, hljómar eins og eftirdrunur frá löngu liðinni tíð. Þegar
lýðveldisstjórnarskráin var í smíðum, reyndu stjórnmálaforingjar að ná
því fram, að Alþingi kysi forseta Íslands, ekki þjóðin. Þeim fannst
vissara að hafa forsetann í vasanum. Þeir vildu halda áfram að hegða sér
eins „ríki í ríkinu, ... beygja ríkisvaldið og knésetja þjóðarheildina“,
eins og Ólafur Jóhannesson, síðar forsætisráðherra, lýsti vandanum í
tímaritinu Helgafelli 1945.
Vönduð skoðanakönnun í Helgafelli,
fyrsta vísindalega skoðanakönnunin á Íslandi, sýndi þó svart á hvítu, að
70% þjóðarinnar vildu þjóðkjörinn forseta og aðeins 20% vildu
þingkjörinn forseta. Stjórnmálaforingjarnir létu undan. Þjóðin fékk að
ráða för með dyggum stuðningi Sveins Björnssonar ríkisstjóra, síðar
forseta Íslands. Það þarf hún að fá að gera nú og eftirleiðis. |