Gengi rúblunnar hefur að undanförnu fallið um helming. Aðalorsökin er
helmingslækkun heimsmarkaðsverðs á olíu, aðalútflutningsafurð Rússa.
Meðalverkalaun Rússa hafa af þessum völdum lækkað úr 1000
Bandaríkjadölum á mánuði í 500 dali. Greinar í blöðum, t.d.
Moscow Times, birta þann
boðskap, að Rússar eigi nú tveggja kosta völ: að stofna nýjan
stjórnmálaflokk til höfuðs Pútín forseta og hans mönnum í
stjórnarflokknum, Sameinað Rússland, eða flýja land, helzt vestur á
bóginn til Evrópu. Hvorugt er auðvelt. Skoðanakannanir benda til, að
meiri hluti kjósenda á landsvísu kunni að vilja fylgja Pútín gegnum
þykkt og þunnt og hann muni ekki stíga til hliðar fyrr en í fulla
hnefana. Loftið er lævi blandið. |
Forsætisráðherra Rússlands og fv. forseti, Dmitry Medvedev, hefur
viðurkennt opinberlega, að efnahagsþvinganir Bandaríkjanna og ESB vegna
innlimunar Krímskagans í Rússland og annarrar íhlutunar Rússa í Úkraínu
eigi ásamt lækkun olíuverðs umtalsverðan þátt í gengisfalli rúblunnar.
Óvíst er, hvort Rússum tekst að bæta þann hluta skaðans, sem orðinn er,
með auknum viðskiptum við Asíulönd eða í gegnum nýstofnað
Evrasíusamband, sem er efnahagsbandalag Rússlands, Hvíta-Rússlands,
Kasakstans og Armeníu (og bráðum Kirgisistans). Reynslan lofar ekki
góðu. Viðskiptasamningar Rússa reynast yfirleitt orðin tóm vegna þess,
að Rússar búa ekki að þeim innviðum, sem þarf til að leysa erlend
viðskipti úr gömlum viðjum.
Ég heyrði ræðu forsætisráðherrans í Moskvu í fyrri viku, þar eð ég var
þar að flytja erindi um auðlindastjórn á sjötta fundinum til minningar
um Yegor Gaidar, fyrsta forsætisráðherra frjáls Rússlands 1991. Ræða
Medvedevs var brýning til Rússa um að bretta upp ermarnar og hvika
hvergi frá nauðsynlegum umbótum. Aðrir rússneskir áhrifamenn tóku í sama
streng, t.d. Alexei Kudrei, fv. fjármálaráðherra, og German Gref, fv.
efnahags- og viðskiptaráðherra. Þeir eru báðir í hópi þeirra, sem mestan
þátt eiga í upprisu Rússlands úr rústum kommúnismans. Allir þrír leggja
ásamt mörgum öðrum ríka áherzlu á nauðsyn þess, að Rússar leysi sig úr
viðjum olíunnar og skjóti fleiri og fjölbreyttari stoðum undir
efnahagslífið. Hvaða vit er í að eiga allt sitt undir einni auðlind, sem
getur þá og þegar hrapað í verði eins og dæmin sanna? Spurningin svarar
sér sjálf. Það myndi bæta ásjónu og orðstír Rússlands heima og erlendis,
ef Pútín forseti talaði skýrt við umheiminn og heimamenn eins og þessir
fyrrverandi og núverandi samstarfsmenn hans. Það gerir Pútín þó ekki.
|
Síðast þegar ég var í Moskvu fyrir fáeinum árum, það var á
vígslufundinum til minningar um Yegor Gaidar, sem þá var nýlátinn langt
fyrir aldur fram, heyrði ég einnig traustvekjandi ræður. Ég heyrði ekki
aðeins Alexei Kudrei og German Gref, sem voru þá áhrifamiklir ráðherrar,
tala skynsamlega um nauðsynlegar efnahagsumbætur, heldur heyrði ég
einnig dómsmálaráðherrann í sjónvarpsviðtali um kvöldið tala
tæpitungulaust um nauðsyn þess að ráðast gegn landlægri spillingu.
Málflutningur ráðherranna var, eins og heimsóknin til Moskvu aftur nú,
óþyrmileg áminning um Ísland.
Hefur nokkur íslenzkur dómsmálaráðherra talað um nauðsyn þess að hamla
spillingu á Íslandi? – hamla því, sem ekkert er?! Hefur nokkur
forsætisráðherra eða fjármálaráðherra sagt eitt aukatekið orð um nauðsyn
þess að draga úr veldi sérhagsmunahópa t.d. í landbúnaði og sjávarútvegi
til að rýma fyrir nýsköpun í atvinnulífinu? Þarna standa rússneskir
stjórnmálamenn þrátt fyrir þessa daga mörgum fetum framar íslenzkum
stjórnmálamönnum. Það má Rússinn eiga. Aðrir segja: Orð rússneskra
stjórnmálamanna skipta engu. Þau vega a.m.k. misþungt.
|
Eins og ég lýsti í grein í DV
á föstudaginn var, virðist trúlegt, að verðfallið á olíu að undanförnu
sé varanlegt og þá um leið gengisfall rúblunnar alveg eins og
helmingsfall á gengi íslenzku krónunnar 2007-2008 reyndist varanlegt.
Bæði löndin hafa af þeim sökum mátt reyna mikla skerðingu kaupmáttar.
Verðlækkun á olíu virðist varanleg vegna þess, að hún á öðrum þræði
upptök sín í auknu olíuframboði af völdum nýrrar tækni við olíuboranir,
sem Bandaríkjamenn hafa beitt síðan 2008.
Á móti þessu kemur, að gengisfall rúblunnar rennir stoðum undir ýmsa
starfsemi, sem átti sér enga umtalsverða vaxtarvon við gamla genginu.
Stóraukinn straumur ferðamanna til Íslands frá hruni vitnar um þetta.
Rússar mega með líku lagi eiga von á miklu fleiri ferðamönnum en áður,
enda er þar margt að sjá og heyra, einkum í Sankti Pétursborg og Moskvu,
sögufrægar og frábærlega fallegar borgir báðar tvær. Þar er að sönnu
margt að sjá og heyra.
|