Heiður þinn
og líf
Þráinn Eggertsson prófessor og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra hafa líkt kröfum Breta á hendur Íslendingum vegna hruns Landsbankans við afarkosti Versalasamningsins eftir lok fyrri heimsstyrjaldarinnar. Þau tala litríkt líkingamál, því að Versalasamningurinn 1919 kallaði glundroða yfir Þýzkaland og lagði með því móti grunninn að kosningasigri nasista fjórtán árum síðar, 1933, og leiddi af sér alræðisstjórn Adolfs Hitler og aðra heimsstyrjöld 1939-45 með hörmulegum afleiðingum. |
Sigurvegararnir í fyrra stríði
1914-18 (Frakkar, Bretar, Bandaríkjamenn og Ítalar) lögðu í
styrjaldarlok þungar kvaðir á Þjóðverja, þar á meðal 33 milljarða
Bandaríkjadala stríðsskaðabætur. Bótafjárhæðin nam þá röskum 80
prósentum af landsframleiðslu Þýzkalands. Fjárhæðin var nokkru síðar
lækkuð um meira en helming. Samningurinn kvað einnig á um
landamærabreytingar, sem smækkuðu Þýzkaland, ýmist með fortakslausri
upptöku lands eða að vilja íbúanna, til dæmis á Suður-Jótlandi.
Þýzkaland minnkaði um tíu prósent að flatarmáli, og Þjóðverjum fækkaði
að því skapi. Þjóðverjar stóðu ekki í skilum, svo að bandamenn tóku þá
af þeim meira land (Ruhr). Þjóðverjar gripu þá til þess ráðs að prenta
peninga og hleypa óðaverðbólgu af stað. Stríðsbæturnar voru aldrei
greiddar til fulls, og náðist samkomulag um þau málalok í Lausanne í
Sviss 1932. Í millitíðinni höfðu Þjóðverjar tekið meira af erlendum
lánum en nam bótagreiðslum þeirra til bandamanna. |
Nærtækt dæmi um burðarþol hagkerfa
frammi fyrir ströngum stríðsskaðabótakröfum eða áþekkum kröfum af öðrum
toga er færeyska bankakreppan um 1990. Henni lyktaði svo, að Danir
lánuðu færeysku landsstjórninni jafnvirði um 120 prósenta af
landsframleiðslu Færeyja á einu ári. Færeyingar stóðu Dönum eigi að
síður skil á skuldinni með vöxtum á innan við tíu árum. Það var að sönnu
þung byrði, en Færeyingar stóðu í skilum, þótt sumar skuldir þeirra
fyrirgæfust, um fimmtungur af heildinni. Danir juku árlegt fjárframlag
sitt til Færeyja úr 14 prósentum af landsframleiðslu eyjanna 1981-90 í
18 prósent 1991-2000 og minnkuðu það síðan í 8 prósent 2001-2006.
Ríkisstjórn Íslands gerir til samanburðar að svo stöddu ráð fyrir, að
hrun íslenzku bankanna hleypi erlendum skuldum ríkisins upp í um 100
prósent af landsframleiðslu. Þessi bráðabirgðatala hvílir á túlkun
ríkisstjórnarinnar á ábyrgðum hennar gagnvart brezkum og hollenzkum
sparifjáreigendum vegna gjaldþrots Landsbankans. Talan á trúlega eftir
að breytast eftir því, hversu rætist úr milliríkjadeilunni við Breta og
Hollendinga og hversu vel eða illa tekst til um sölu eigna úr þrotabúum
bankanna. |
Sú hætta steðjar nú að Íslandi, að
sumir missi móðinn og hverfi til annarra landa í leit að vinnu líkt og
gerðist í Færeyjum, þar sem fimmtungur mannfjöldans fluttist burt frá
eyjunum, einkum til Danmerkur. Helmingur hinna brottfluttu sneri aftur
til Færeyja. Brottflutningur mikils fjölda fólks héðan myndi þyngja til
muna róður hinna, sem halda tryggð við landið. Ísland hefur til þessa
haft sterkt aðdráttarafl. Nú reynir á þá römmu taug, sem rekka dregur
föðurtúna til. Mönnum veitist misauðvelt að skilja við maka sinn, gerist
þess þörf. Um börn gildir öðru máli: við börnin sín getur enginn maður
skilið lífs án djúprar, stundum ævilangrar óhamingju. Hver maður á sér
aðeins eitt föðurland, aðeins einn farveg fyrir föðurlandsástina, líkt
og fyrir föðurást og móður. |
Fréttablaðið, 6. nóvember 2008.