Þrjár systur
Kreppan mikla 1929-39 markaði djúp spor í líf þeirra, sem urðu fyrir
barðinu á henni. Mörg þekkjum við fólk, sem ólst upp í kreppunni.
Sögurnar eru sumar þyngri en tárum taki.
Hagsaga heimsins sýnir, að aukin misskipting er jafnan einn af
fyrirboðum fjármálakreppu. Það gerðist í Bandaríkjunum á þriðja áratug
síðustu aldar. Græðgi og spilling einkenndu bandarískt þjóðlíf árin fram
að kreppu. Þegar svo ber við, er þriðja systirin, misskipting, sjaldan
langt undan. Þegar stjórnvöld gefa græðgi og spillingu lausan tauminn,
sjást ýmsir ekki fyrir, heldur skara eftir föngum eld að eigin köku á
kostnað annarra, sem fá ekki rönd við reist. |
Warren Harding var forseti Bandaríkjanna 1921-23. Forsetatíðar hans er
einkum minnzt fyrir spillingu, sem leiddi til fangelsisdóma yfir
ráðherrum í stjórn hans, embættismönnum og einkavinum; tveir styttu sér
aldur; einn flúði land. Bjarta hliðin á sögunni er sú, að dómskerfi
Bandaríkjanna sló eins og klukka og kom lögum yfir ýmsa þeirra, sem
höfðu gerzt brotlegir. Misskipting auðs og tekna hélt áfram að ágerast
fram í kreppu.
Þessi lýsing á undanfara kreppunnar vestra á að sumu leyti vel við
Ísland árin fram að hruni. Græðgi og spilling tóku völdin í boði
gerspilltrar stjórnmálastéttar, fyrst með ókeypis afhendingu
framseljanlegra aflakvóta og síðan með einkavæðingu bankanna eftir
áþekkri forskrift. Árangurinn varð sjávarútvegur á heljarþröm þrátt
fyrir forgjöfina og hrundir bankar, holar skeljar. Misskipting færðist
mjög í aukana, meðan á þessu stóð, svo sem opinber gögn frá embætti
ríkisskattstjóra sýna glöggt og Stefán Ólafsson prófessor hefur öðrum
fremur haldið til haga, unnið úr og aukið við. |
Hagstofu Íslands bar skylda til að kortleggja þessa skipulögðu
óheillaþróun til að hafa ekki slökkt á svo mikilvægu viðvörunarljósi í
aðdraganda hrunsins. Ekki bara það: rétt skal vera rétt. Hagstofan brást
þessari skyldu og ýtti með því móti undir óskammfeilinn málflutning
stjórnarerindreka, sem héldu því fram, að misskipting hefði ekki aukizt.
Þessa óhollu meðvirkni Hagstofunnar fram að hruni þarf að skoða í
samhengi við niðursallandi lýsingu Rannsóknarnefndar Alþingis (RNA) á
ámælisverðri vanrækslu víða annars staðar í stjórnsýslunni.
Rannsóknarnefndinni láðist að fjalla um þátt Hagstofunnar í hruninu, og
leiðréttist það hér með.
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS) brenndi einnig af, blindaður af
áhugaleysi Hagstofunnar. Í síðustu skýrslu sinni um Ísland fyrir hrun
mærði sjóðurinn stjórnvöld fyrir jafna tekjuskiptingu, að því er virtist
grunlaus um þá stórauknu misskiptingu auðs og tekna, sem hér hafði átt
sér stað í allra augsýn að undirlagi rangsleitinna stjórnvalda. Ég fann
að þessu við sjóðinn og á ekki von á, að starfsmenn hans endurtaki
villuna.
Sjóðurinn þarf einnig í ljósi skýrslu RNA og ábendinga Evrópuráðsins í
gegnum GRECO að hugleiða, hvort honum beri ekki framvegis að fjalla
opinskátt í Íslandsskýrslum sínum um spillingu líkt og hann gerir í
Keníu, Rússlandi og annars staðar. Óskrifuð regla sjóðsins er að fjalla
opinskátt um spillingu í þeim aðildarlöndum, þar sem spillingin virðist
hamla framförum, því að þar er spillingin hagstærð. Sjóðurinn gerir
Íslendingum engan greiða með því að þegja um spillinguna, sem keyrði
bankana í kaf og rústaði efnahag mikils fjölda fólks og fyrirtækja.
Hreinskilin orðræða um spillingu er vænleg aðferð til að kveða
spillinguna niður. Sjóðnum er þó líkt og Hagstofunni annt um að styggja
stjórnvöld helzt ekki nema í neyð.
|
Afleiðingar kreppunnar miklu þá vestan hafs og austan og hrunsins hér
heima eru einnig að ýmsu leyti keimlíkar, þótt kreppan mikla hafi verið
mun dýpri. Atvinnuleysið hér núna er að vísu mikið, en það er þó mun
minna en það var í Norður-Ameríku og Evrópu á þriðja áratugnum. Auknu
atvinnuleysi fylgir líklega enn aukinn ójöfnuður, þar eð atvinnuleysið
kemur jafnan verst niður á þeim, sem höllum fæti standa. Varla munu
Hagstofan og AGS láta þann vanda einnig fara fram hjá sér, enda hefur
Hagstofan brugðizt vel við umvöndunum mínum og annarra og tekið sig á.
Í skýrslu sinni „Lágtekjumörk og tekjudreifing 2003-2006“ í
apríl 2009 kannaðist Hagstofan loksins við aukinn ójöfnuð, en þar segir:
„Gini-stuðullinn og fimmtunga-stuðullinn hafa hækkað meira hjá Íslandi
en flestum öðrum Evrópuþjóðum. [Hér hefði átt að standa „öllum“ öðrum
Evrópuþjóðum, innskot mitt, ÞG.] ... Ísland færist úr 3.-4. sæti árið
2004 í 7.-8. sæti árið 2005 og er komið í 13.-14. sæti árið 2006.“
Þjóðminjasafnið safnar nú skipulega heimildum um íslenzka spillingu fyrr
og nú. Framtakið er til fyrirmyndar. Hagstofan þyrfti að leggja safninu
lið. Þetta mjakast. |
Fréttablaðið, 1. júlí 2010.