Hvers vegna þjóðaratkvæði?
Þjóðaratkvæðagreiðslan á laugardaginn kemur, 20. október, er haldin til
að virða hvort tveggja í senn, ákvörðun Alþingis og vilja þjóðarinnar.
Alþingi ákvað á sínum tíma með 35 atkvæðum gegn 15 að halda
þjóðaratkvæðagreiðsluna. Meiri hlutann skipuðu þingmenn úr öllum flokkum
á Alþingi öðrum en Sjálfstæðisflokknum. Áður, 28. september 2010, hafði
Alþingi samþykkt einum rómi, með 63 atkvæðum gegn engu, ályktun um að
„endurskoða ... stjórnarskrá lýðveldisins Íslands“. Hinn 12. júní 2010
sagði formaður Sjálfstæðisflokksins í ræðustóli Alþingis, að flokkur
hans „myndi ekki leggjast gegn þessu máli, heldur styðja það, að
endurskoðun stjórnarskrárinnar fari fram“. Í sömu umræðu sagði
varaformaður Framsóknarflokksins, sem hafði sett endurskoðun
stjórnarskrárinnar sem skilyrði fyrir stuðningi við minnihlutastjórn
Samfylkingarinnar og VG 2009, „mikilvægt, að þing og þjóð gangi í takt:
Til hamingju Ísland.“ Þegar kallað er eftir því, að þing og þjóð gangi í
takt, er það þingið, sem á að ganga í takt við þjóðina, ekki öfugt.
Þingið sækir umboð sitt til þjóðarinnar. Það stendur skýrum stöfum í
frumvarpi Stjórnlagaráðs til nýrrar stjórnarskrár, en ekki í
lýðveldisstjórnarskránni frá 1944. |
Hryggjarstykkið í því frumvarpi til nýrrar stjórnarskrár, sem borið
verður undir þjóðaratkvæði 20. október, er niðurstaða þjóðfundarins
2010. Fundinn sóttu 950 manns af landinu öllu, 18 ára til 91 árs, karlar
og konur í nánast jöfnum hlutföllum. Sjö manna stjórnlaganefnd, skipuð
af Alþingi, skipulagði þjóðfundinn undir forustu Guðrúnar Pétursdóttir
líffræðings, formanns nefndarinnar, og birti helztu niðurstöður hans.
Breið samstaða náðist á Alþingi um skipun stjórnlaganefndar.
Sjálfstæðisflokkurinn átti mikinn og þakkarverðan þátt í því samkomulagi
og einnig í þjóðfundinum. Þjóðfundargestir voru valdir af handahófi úr
þjóðskrá. Fjöldi fundarmanna, 950 manns, tryggir, að niðurstöður
þjóðfundarins endurspegla vilja þjóðarinnar í tölfræðilega marktækum
skilningi.
Allir Íslendingar 18 ára og eldri áttu jafna möguleika á að veljast til
setu á þjóðfundinum og leggja þar grunninn að nýrri stjórnarskrá. Það er
kjarni málsins. Hlutverk Stjórnlagaráðs var í reyndinni ekki annað en að
færa niðurstöður þjóðfundarins í nothæfan frumvarpsbúning. Stjórnlagaráð
taldi það skyldu sína að virða niðurstöður þjóðfundarins að sem flestu
leyti. Það tókst með smávægilegum frávikum eins og ég lýsti á þessum
stað á föstudaginn var. |
Forsaga málsins er kunn. Með lýðveldisstjórnarskránni var tjaldað til
einnar nætur. Þetta má lesa í Alþingistíðindum (1944, A, bls. 312-313):
„[H]efur
greinilega komið í ljós nú í umræðum ... á Alþingi, í blöðum og víðar í
tilefni þjóðaratkvæðagreiðslunni um lýðveldisstjórnarskrána, að brýn
nauðsyn er til þess, að hinni almennu endurskoðun verði hraðað og til
hennar vandað. Þjóðin virðist á einu máli um það, að stjórnskipunarlög
þau, sem við nú búum við, séu á margan hátt svo gölluð og úrelt, að ekki
verði við lengur unað. […] Má fullyrða, að ekkert hefði hindrað
almenning í að láta í ljós óánægju sína með stjórnarskrána við
atkvæðagreiðsluna í s.l. mánuði annað en sú óhjákvæmilega nauðsyn, að
þjóðin sýndi samhug sinn um stofnun lýðveldisins, en léti ekki óánægju
með einstök atriði stjórnarskrárinnar, sem ekkert stóðu í sambandi við
sjálfa lýðveldisstofnunina, verða til þess að tvístra þjóðinni.“ Þjóðin
þurfti þá að standa saman sem einn maður að lýðveldisstofnun í miðri
heimsstyrjöld m.a. til að tryggja viðurkenningu stórveldanna. Flokkarnir
smöluðu kjósendum á kjörstað.
|
Vert er að rifja upp fleira, sem stendur í einróma ályktun Alþingis 28.
október 2010. Þar segir: „Alþingi ályktar að skýrsla rannsóknarnefndar
Alþingis verði höfð að leiðarljósi í framtíðinni, ... að taka verði
gagnrýni á íslenska stjórnmálamenningu alvarlega , ... að skýrsla
rannsóknarnefndar Alþingis sé áfellisdómur yfir stjórnvöldum,
stjórnmálamönnum og stjórnsýslu, verklagi og skorti á formfestu.“
Og hvað sagði Rannsóknarnefnd Alþingis (2010, 8. bindi, bls. 184): “Taka
þarf stjórnarskrána til skipulegrar endurskoðunar í því skyni að treysta
grundvallaratriði lýðræðissamfélagsins og skýra betur meginskyldur,
ábyrgð og hlutverk valdhafa.” Endurskoðun stjórnarskrárinnar nú er
mikilvægur hlekkur í uppgjöri þjóðarinnar við hrunið. Alþingi óskar
eftir leiðsögn kjósenda 20. október. Það gerist sárasjaldan, að Alþingi
ráðfæri sig þannig við fólkið í landinu. Síðast þurfti potta og pönnur.
Nú dugir kjörseðill. |