Í röngu liði?
Þetta var sumarið 1971. George Brown, fyrrum utanríkisráðherra Bretlands, var á Íslandi að halda fyrirlestur, sem væri varla í frásögur færandi nema fyrir það, að ég hitti hann heima hjá foreldrum mínum, var heima í leyfi, bjó í Manchester, þar sem Brown þekkti hverja þúfu líkt og í Liverpool, sem gefur mér tilefni til að gangast við villu í grein minni hér á þessum stað fyrir viku, þegar ég lýsti Brasilíu sem eina landi heimsins, þar sem alþjóðaflugvöllur heitir í höfuðið á tónskáldi, Tom Jobim. En þá gleymdi ég flugvellinum í Liverpool, sem hefur síðan 2002 heitið í höfuðið á John Lennon, og leiðréttist það hér með. |
Brown var vörubílstjórasonur og verklýðsforingi og sat á þingi fyrir
Verkamannaflokkinn 1945-70. Hvílíkur sjór af sögum. Hann sagði mikil
brögð að kvennafari og fylliríi í brezka þinginu, en hann hefði sjálfur
aldrei stundað fyrr nefnt, harðgiftur maðurinn, konan hans hét Soffía,
þau giftust 1937. Hann reyndi ekki að leyna heitum tilfinningum, sem
helguðust aðallega af umhyggju fyrir fátæku fólki. Hann lýsti fyrir
okkur slítandi átakafundum í verklýðsfélögunum og flokknum, sem tóku svo
á hann, að hann varð að fá sér sjúss og annan sjúss og einn sjúss enn og
fara síðan heim og spila Chopin of nóttina til að komast aftur í
jafnvægi, sem leiðir mig að annarri yfirsjón í greininni minni fyrir
viku: flugvöllurinn í Varsjá heitir í höfuðið á Frédéric Chopin, það
leiðréttist hér með; ég hef aldrei komið til Póllands. Ég gleymi ekki
orðum, sem Brown lét falla í fyrirlestrinum: „There shall be no one to
stop us from being stupid if stupid we want to be.“ Með öðrum orðum:
Lýðræði er algilt og óvefengjanlegt líkt og önnur mannréttindi og leyfir
engin frávik, engar undantekningar. |
Fortakslaus lýðræðisboðskapur Browns á brýnt erindi við Íslendinga eins
og sakir standa. Allir máttu vita, hvernig í pottinn var búið í
bönkunum. Tveir stærstu stjórnmálaflokkarnir höfðu skipt atvinnulífinu á
milli sín frá því fyrir stríð: þeir tóku umboðið fyrir Coca-Cola,
framsókn tók einnig General Motors, og höfðu heiðarlegir menn utan
flokkanna þó áður tryggt sér bæði þessi umboð, en þau voru höfð af þeim
með svikabrögðum, sem nauðsyn ber til að fjalla um á prenti innan tíðar.
Það kostaði ekki mikið að sætta hina flokkana við þetta fyrirkomulag;
fulltrúar þeirra fengu að sitja til dæmis í bankaráðum. Bankastjórar
lánuðu vinveittum fyrirtækjum og einstaklingum og hver öðrum við
vildarkjörum, og um þetta var ekki skrifaður stafur nema helzt í
Þjóðviljann. Lýsingarnar á
ástandinu lifðu í munnmælum, sem
Morgunblaðið og Tíminn
kölluðu kommúnistaáróður og róg. |
Þetta var arfleifð gömlu bankanna handa nýjum eigendum eftir
einkavæðingu. Þess vegna var helmingaskiptaflokkunum svo mjög í mun að
selja bankana í hendur manna í „talsambandi“ við flokkana eins og því
var lýst úr návígi. Nú voru nýir tímar, ódýrt erlent lánsfé flæddi inn í
landið, og eigendum og stjórnendum bankanna og vinum þeirra á vettvangi
stjórnmálanna héldu engin bönd. Hverjir skyldu hafa tekið að sér að
kveða niður ítrekuð varnaðarorð um glannalegar lántökur bankanna?
Viðskiptaráð greiddi morð fjár fyrir tvær hvítþvottarskýrslur um
bankana, og ráðherrar hjálpuðu til við þvottabrettin allar götur fram að
hruni. Almenningur horfir agndofa á hneykslin hrannast upp, þar á meðal
skýrar vísbendingar um refsiverða háttsemi og tilraunir til
yfirhylmingar. Bankamennirnir syngja hver um annan með því leka
lánabókum bankanna og öðrum óþægilegum leyndarmálum í fjölmiðla.
Ríkisstjórnin hefur ekki hirt um að marka sér skýra stöðu við hlið
fólksins í landinu gegn ábyrgðarmönnum hrunsins. Hún heldur áfram að
hegða sér að ýmsu leyti eins og máttvana handbendi þeirra, sem lögðu
bankana og efnahagslífið í rúst. Þessu ástandi getur fólkið í landinu
ekki unað nema skamma hríð. |
Ríkisstjórnin virðist lömuð af ótta. Við hvað? Hún gerir sér til dæmis
enn að góðu mannskapinn, sem Sjálfstæðisflokkurinn valdi til forustu
fyrir lögreglunni og til rannsóknar bankahrunsins eins og til að
tryggja, að sem minnst kæmi út úr henni. Ríkisstjórnin hreyfir hvorki
legg né lið, þótt landið sé nánast löggæzlulaust og glæpagengi láti
greipar sópa um heimili fólks. Ef stjórnin teflir frá sér trausti
fólksins, sýnist fullreynt, að stjórnmálastéttin er ófær um að leiða
Ísland út úr ógöngunum, sem hún ásamt öðrum leiddi landið í. Þá reynir á
leikreglur lýðræðisins. Þær eru ófrávíkjanlegar. |
Fréttablaðið, 6. ágúst 2009.