Glugginn er galopinn
Reynslan utan úr heimi bendir til að kreppur séu kjörlendi nýrra
stjórnarskráa. Hitt gerist sjaldan að þjóðir komi sér upp nýrri
stjórnarskrá af engu sérstöku tilefni, en það getur þó gerzt og hefur
gerzt, t.d. í Svíþjóð 1974 og Kanada 1982. Hitt er þó miklu algengara að
kreppur eða sambærileg atvik, t.d. byltingar eða stríð, þurfi til að fá
menn til að setja sér nýja stjórnarskrá. |
Ísland
fellur vel að þessari mynd. Bankahrunið 2008 kallaði á uppgjör og þá um
leið nýja stjórnarskrá. Alþingi setti málið í farveg sem var í einu og
öllu til fyrirmyndar og hefur vakið athygli og aðdáun um allan heim.
Þjóðfundurinn 2010 og Stjórnlagaráð 2011 skiluðu öllu sem ætlazt var til
af þeim innan settra tímamarka og í friði og spekt. Allir flokkar á
þingi studdu ferlið framan af, þ.m.t. Framsóknarflokkurinn sem gerði
nýja stjórnarskrá ritaða af kjörnum fulltrúum fólksins beinlínis að
skilyrði fyrir stuðningi við minnihlutastjórn Samfylkingarinnar og
Vinstri grænna 2009. Sjálfstæðisflokkurinn studdi ferlið einnig og átti
t.d. frumkvæði á Alþingi að þjóðfundinum. Efnahagsástandið var svo
ótryggt að enginn vissi hversu djúp kreppan yrði eða hversu lengi hún
myndi vara. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn dró upp neyðaráætlun um hagstjórn
í samráði við ríkisstjórnina. Stjórnmálastéttin var í þröngri stöðu, með
bakið uppi við vegg.
Smám saman kom í ljós að bjargráð AGS studd lánsfé frá Norðurlöndum og
Póllandi auk sjóðsins sjálfs myndu skila meiri árangri en menn höfðu
þorað að vona í upphafi. Kreppan virtist því ætla að verða grynnri og
styttri en menn höfðu óttazt í fyrstu. Skuggi skandalanna sem hrintu
Íslandi fram af bjargbrúninni 2008 virtist vera að styttast.
Sjálfstæðisflokknum og Framsóknarflokknum sem báru höfuðábyrgð á
hruninu, m.a. með spilltri einkavæðingu bankanna 1998-2003, óx því
kjarkur á ný. Þeim fannst staðan ekki vera eins þröng og áður. |
Þetta gerðist í áföngum. Hæstiréttur eða réttar sagt sex dómarar í
réttinum, þar af fimm skipaðir af dómsmálaráðherrum
Sjálfstæðisflokksins, tóku í ársbyrjun 2011 ranga og beinlínis ólöglega
ákvörðun um að ógilda stjórnlagaþingskosninguna; sú ákvörðun er eitt
grófasta hneykslið í sögu réttarins frá 1920 og þótt víðar væri leitað.
Lögleysuna má ráða af því að Öryrkjabandalagið lagði árið eftir fram
hliðstæða kæru vegna forsetakjörsins 2012 til að knýja Hæstarétt til að
líta í spegil, kæru sem Hæstiréttur vísaði réttilega frá sér á þeim
grundvelli að meintir annmarkar hefðu engin áhrif getað haft á úrslitin.
Hertir af lögleysu Hæstaréttar snerust þingmenn Sjálfstæðisflokksins nú
gegn stjórnarskrármálinu og síðan einnig þingmenn Framsóknarflokksins.
Auðmýktin frá því fyrst eftir hrun var nú rokin út í veður og vind. Ef
kreppunni slotaði, hlyti nýju stjórnarskrána að daga uppi eftir þeirri
reglu að kreppur eru kjörlendi nýrra stjórnarskráa. Glugginn var að
lokast, héldu þingmenn núverandi stjórnarflokka. Upp hófst einhver
voðalegasta smánarganga þeirra á Alþingi frá öndverðu eins og t.d.
Jóhanna Sigurðardóttir fv. forsætisráðherra og þingmennirnir Margrét
Tryggvadóttir, Þór Saari og Þráinn Bertelsson hafa öll vitnað um
opinberlega úr návígi. |
Kreppunni er ekki lokið. Efnahagslífið hefur að vísu rétt úr kútnum. En
hrunið snerist ekki aðeins um efnahagsmál eins og sjá má af því að
Hæstiréttur hefur dæmt bankamenn og aðra til fangavistar sem nemur 60
mannárum fyrir afbrot tengd hruninu og eiga mörg mál þó enn eftir að
koma til kasta réttarins. Við bætast nú Panama-skjölin sem sýna að
fjöldi aflandsfyrirtækja í eigu Íslendinga er 60 sinnum meiri miðað við
mannfjölda en fjöldi slíkra fyrirtækja í eigu Norðmanna. Skjölin afhjúpa
spillingu og hagsmunaárekstra á æðstu stöðum víða um heim og hafa nú
þegar leitt til stjórnarskipta hér heima, en þó aðeins til málamynda enn
sem komið er.
Af þessari atvikarás má ráða að uppgjöri Íslendinga við hrunið er hvergi
nærri lokið. Af þessu má einnig ráða að tilefnið sem hrunið 2008 gaf
þjóðinni til að setja sér nýja stjórnarskrá er enn til staðar. Ætla má
að nýtt Alþingi sjái í ljósi alls sem á undan er gengið sóma sinn í að
staðfesta loksins þjóðarviljann eins og hann birtist í
þjóðaratkvæðagreiðslunni um nýju stjórnarskrána 20. október 2012.
Stjórnarskrármálið er efst á stefnuskrá Pírata, langstærsta
stjórnmálaflokksins skv. öllum skoðanakönnunum. Nægur er hann orðinn nú
þegar skaðinn sem töf gildistöku nýju stjórnarskrárinnar hefur valdið.
Glugginn er galopinn. |