Hjálp að utan
Ríkisstjórnin heldur áfram að brjóta mannréttindi. Undirrót brotanna
virðist vera siðblinda og hroki, sem náðu að grafa sig niður á nýja dýpt
á vettvangi stjórnmálanna eftir 1980 og hrintu landinu að endingu fram
af bjargbrúninni fyrir ári, þegar bankarnir hrundu. Fyrir liggur, að
Landssamband íslenzkra útvegsmanna (LÍÚ) samdi fiskveiðistjórnarlögin,
sem mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna gerði í reyndinni ómerk með
bindandi úrskurði 2007. Ríkisstjórnin sendi þá nefndinni svarbréf þess
efnis, að nefndin hlyti að hafa misskilið málið. Í bréfinu voru tuggðar
aftur upp þær röksemdir, sem mannréttindanefndin, skipuð þaulreyndum
sérfræðingum víðs vegar að, hafði áður reifað og hafnað með vandlegum
rökstuðningi. Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur hefur ekki dregið
bréfið til baka og sýnir engin merki um, að hún hyggist greiða
sjómönnunum, sem unnu málið, bætur í samræmi við úrskurð
mannréttindanefndarinnar. Ekki liggja heldur fyrir skýr áform um að
skera mannréttindabrotin burt úr fiskveiðistjórninni. Samtök
atvinnulífsins heimta óbreytta fiskveiðistjórn, frekari
mannréttindabrot. Vandinn er því ekki bundinn við LÍÚ. Hrunið hefði að
réttu lagi átt að kalla á tafarlausa endurskoðun kvótakerfisins, þar eð
rætur hrunsins má rekja til endurgjaldslausrar úthlutunar aflakvóta og
sjálftökuhugsunarinnar, sem að baki bjó. Þetta hugarfar sýndi sig að
nýju í illa útfærðri einkavæðingu bankanna, sem voru afhentir vel
tengdum vildarvinum á silfurfati. |
Aðrar þjóðir fylgjast nú með hverju fótmáli Íslands. Tilefnið er ærið,
enda hefur það ekki áður gerzt, að bankahrun með svo fámennri þjóð hafi
valdið jafnmörgu fólki svo miklum skaða. Tjónið mun nema kannski
fimmfaldri landsframleiðslu Íslands, þegar öll kurl koma til grafar.
Ætla má, að útlendingar setji ítrekaðan brotavilja stjórnvalda í
fiskveiðistjórnarmálinu í samhengi við framferði þeirra og bandamanna
þeirra í bankaheiminum og viðskiptalífinu fyrir og eftir hrun. Enginn
þarf lengur að velkjast í vafa um, að ábyrgðarleysi og óstjórn ásamt
óviðurkvæmilegu samneyti bankanna, stjórnmálastéttarinnar og
viðskiptalífsins með tilheyrandi skorti á valdmörkum og mótvægi ollu
mestu um hrunið. Þetta samneyti hlýtur rannsóknarnefnd Alþingis að telja
sér skylt að kortleggja. |
Rösku ári eftir hrun hefur ekki enn fengizt upplýst, hvaða
stjórnmálamenn, embættismenn og aðrir tóku áhættulaus auðkúlulán í
bönkunum til hlutabréfakaupa með veði í bréfunum einum. Þessi
einstefnuveðmál kunna að stríða m.a. gegn 249. grein hegningarlaga um
umboðssvik, þar eð ætlunin að baki viðskiptunum var bersýnilega að láta
saklausa vegfarendur, það er aðra hluthafa og að lokum skattgreiðendur,
taka skellinn, ef illa færi. Rannsóknarnefnd Alþingis hefði verið í lófa
lagið að taka þetta afmarkaða mál og önnur slík út fyrir sviga og birta
upplýsingarnar sérstaklega. Hefði það verið gert, hefði Alþingi kannski
hugsað sig tvisvar um, áður en það lagði auðkúlulánþega að jöfnu við
heiðarlega skuldara, sem lögðu húseignir sínar að veði, með því að bjóða
báðum hópum hliðstæða eftirgjöf skulda með nýjum lögum, sem voru keyrð í
gegnum þingið með hraði um daginn. |
Úr því að bankahrunið bakaði miklum fjölda fólks heima og erlendis svo
mikinn skaða sem raun ber vitni, á umheimurinn eins og Íslendingar
sjálfir skýlausa heimtingu á undanbragðalausu uppgjöri. Dýrmætur tími
fór til spillis fyrstu mánuðina eftir hrun. Ríkisstjórnin hafnaði
tillögum um erlenda rannsókn og uppskar skiljanlega tortryggni. Enn eru
uppi háværar raddir um að slíta samstarfinu við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn
(AGS), þótt samkomulag stjórnvalda við sjóðinn hafi skipt sköpum. Engin
þjóð nema Færeyingar hefur fallizt á að veita Íslendingum aðstoð án
milligöngu AGS. Aðrir reyna að gera hlut Evu Joly rannsóknardómara
tortryggilegan, væntanlega í þeirri von, að hún verði send til síns
heima. Hún hefur öðrum fremur vakið vonir um, að meintir lögbrjótar
verið sóttir til saka. Þörfin fyrir efnahagsráðgjöf með alþjóðlegu sniði
og fyrir erlenda rannsóknarhjálp við uppgjörið er runnin af sömu rót og
ætti að blasa við hverjum manni. Erlend aðstoð getur skipt sköpum fyrir
uppgjör erfiðra innanlandsmála. Til dæmis þurfti spænskan dómara og
brezka lögreglu til að opna augu Sílebúa fyrir margþættum glæpum
Augustos Pinochet, fyrrum forseta Síle. |
Fréttablaðið, 29. október 2009.