Losun hafta: Málið leyst?
Ríkisstjórnin hefur nú loksins lagt fram áætlun um losun gjaldeyrishafta
næstum sjö árum eftir hrun. Það er léttir í ljósi forsögunnar þar eð
oddvitar ríkisstjórnarinnar og Seðlabankans hafa undangengin misseri
talað út og suður um höftin.
Greinargerðir ríkisstjórnarinnar virðast bera höfundareinkenni erlendra
sérfræðinga. Mér og ýmsum öðrum var kynnt málið í bréfi frá brezkum
lögmanni. Bréfið hefst á orðunum (þýðing mín): „Fyrir hönd ríkisstjórnar
Íslands er mér ánægja að kynna tvö lagafrumvörp efnahags- og
fjármálaráðherra …“ |
Í ensku fylgiskjölunum kemur ýmislegt fram sem oddvitum
ríkisstjórnarinnar hefur ekki verið tamt að tala um. Þar segir m.a.
(þýðing mín): „Bankahrunið á Íslandi er hið mesta sem nokkurt land hefur
staðið frammi fyrir miðað við stærð hagkerfisins. … Embætti Sérstaks
saksóknara hefur ákært bankamenn vegna hrunsins í opnu og gagnsæju ferli
og … stuðlað að því að breyta viðskiptamenningunni og endurreisa traust
almennings með því að tryggja að fjármálageirinn sé látinn sæta ábyrgð á
gerðum sínum.“ Umfjöllun um ákærur Sérstaks saksóknara á hendur
bankamönnum er hvergi að finna í athugasemdum við frumvarpið á Alþingi,
enda væri það eins og að nefna snöru í hengds manns húsi.
|
Vandinn sem við er að glíma er vel þekktur. Það er ekki til gjaldeyrir í
landinu til að leysa út krónueignir kröfuhafa þrotabúa gömlu bankanna
svo að kröfuhafarnir geti flutt fé sitt úr landi. Um þetta segir í
greinargerð ríkisstjórnarinnar (þýðing mín): „Afleiðingar losunar hafta
án viðeigandi undirbúnings yrðu gengishrun krónunnar, nær fordæmalaus
verðbólgugusa, flóðbylgja gjaldþrota og efnahagslegur óstöðugleiki. ...
Hreinn gjaldeyrisforði Seðlabankans er aðeins dropi í hafið borið saman
við gjaldeyrisútflæðið sem vænta mætti væri höftunum aflétt án
undirbúnings.“ |
Þetta er snjóhengjan svo nefnd sem nú er talin nema um 60% af
landsframleiðslu. Til samanburðar nemur gjaldeyrisforði Seðlabankans um
25% af landsframleiðslu. Í þessu ljósi er vert að rifja það upp að
aðalefnahagsráðgjafi fjármálaráðherra hefur á prenti mælt með afnámi
gjaldeyrishafta án fyrirvaranna að framan. Hvað sem því líður felst
fyrirhugaður undirbúningur að losun haftanna í að tilkynna kröfuhöfum að
þeir þurfi að skiljast við rösklega helming snjóhengjunnar fyrir árslok
2015 ella verði eignir þeirra skattlagðar að sama skapi til að aftra
útstreymi gjaldeyris og gengisfalli krónunnar. Þetta er stundum kallað
klipping. |
Líklegt hefur sýnzt frá upphafi að einhverjir kröfuhafar myndu leita
réttar síns fyrir dómstólum innan lands eða utan teldu þeir
skattlagningu eigna þeirra vera sértæka frekar en almenna og fela í sér
mismunun. Um þetta lykilatriði er fjallað í athugasemdum við frumvarpið
á Alþingi, en ekki í ensku greinargerðunum. Hafi ríkisstjórnin gengið úr
skugga um að þessi hætta sé úr sögunni sem virðist ólíklegt kemur það
hvergi fram. |
Ef kröfuhafar sætta sig við sinn hlut og snjóhengjan
bráðnar, stendur samt sem áður eftir óleystur vandi. Vandinn er að
krónan nýtur ekki almenns trausts heima fyrir eftir allt sem á undan er
gengið og getur ekki heldur frekar en áður í ljósi smæðar hagkerfisins
orðið gjaldgeng í alþjóðaviðskiptum. Því virðist líklegt að losun hafta
leiði að öðru jöfnu til gjaldeyrisútstreymis úr landi óháð
snjóhengjunni. Á móti þessu kunna að koma endurvakin vaxtamunarviðskipti
með því að erlendum sparifjáreigendum
verður aftur frjálst eins og fyrir hrun að leggja fé sitt inn á íslenzka
hávaxtareikninga. Hvorki ríkisstjórnin né Seðlabankinn virðast af gögnum
málsins ráðgera nauðsynlegar hraðahindranir eða annan viðbúnað til að
aftra nýju hruni, t.d. með skattlagningu vaxtamunarviðskipta (t.a.m. með
Tobin-skatti sem kenndur er við Nóbelsverðlaunahafann James Tobin). Við
bætist að framtíðarskipan peningamála og bankamála er óráðin enn.
|
Í ljósi alls þessa og fyrri reynslu virðast digurbarkalegar yfirlýsingar stjórnvalda og ráðgjafa þeirra („Við hittum tvisvar í mark með sömu byssukúlunni“ og „Efnahagsleg endurreisn Íslands verður kennd við Harvard í framtíðinni“) ekki eiga vel við að svo stöddu. Spyrjum heldur að leikslokum. |