Stjórnlagaráð samþykkti í gær einum rómi frumvarp til nýrrar
stjórnarskrár og mun á morgun afhenda það forseta Alþingis.
Stjórnlagaráð gerir þingi og þjóð tilboð um stjórnskipulegan grundvöll
að opnara og réttlátara þjóðfélagi, um nýja stjórnarskrá gegn
flokksræði, forréttindum, leynd og spillingu í samræmi við niðurstöður
þjóðfundar 2010. Frumvarpið felur í sér ýmis merk nýmæli og fyrirheit um
gagngerar breytingar á stjórnskipan landsins, sumar í samræmi við
ábendingar Rannsóknarnefndar Alþingis. Stjórnlagaráð leggur til, að
Alþingi leyfi þjóðinni að greiða atkvæði um frumvarpið til samþykktar
eða synjunar. Meðal merkustu nýmæla frumvarpsins eru þessi.
|
Jafnt vægi
atkvæða
„Atkvæði kjósenda alls staðar á landinu vega jafnt. ... Kjósandi
velur með persónukjöri frambjóðendur af listum í sínu kjördæmi eða af
landslistum, eða hvort tveggja. Honum er og heimilt að merkja í stað
þess við einn kjördæmislista eða einn landslista, og hefur hann þá valið
alla frambjóðendur listans jafnt.“ Í þessum
orðum felst, að kjósendum er frjálst að kjósa hvort heldur með gamla
laginu eða velja frambjóðendur þvert á lista. Allir geta kosið Ómar
Ragnarsson hvar í flokki sem þeir standa. Einnig segir: „Heimilt
er að mæla fyrir um í lögum að valið sé einskorðað við kjördæmislista
eða landslista sömu samtaka.“ Í þessu felst, að Alþingi er heimilt að
skerða rétt kjósenda til að kjósa þvert á lista.
|
Auðlindir í þjóðareign
„Auðlindir í náttúru Íslands, sem ekki eru
í einkaeigu, eru sameiginleg og ævarandi eign þjóðarinnar. Enginn getur
fengið auðlindirnar, eða réttindi tengd þeim, til eignar eða varanlegra
afnota og aldrei má selja þær eða veðsetja. ... Til auðlinda í
þjóðareign teljast náttúrugæði, svo sem nytjastofnar, aðrar auðlindir
hafs og hafsbotns innan íslenskrar lögsögu, og uppsprettur vatns- og
virkjunarréttinda, jarðhita- og námaréttinda. Með lögum má kveða á um
þjóðareign á auðlindum undir tiltekinni dýpt frá yfirborði jarðar. Við
nýtingu auðlindanna skal hafa sjálfbæra þróun og almannahag að
leiðarljósi. Stjórnvöld bera, ásamt þeim sem nýta auðlindirnar, ábyrgð á
vernd þeirra. Stjórnvöld geta á grundvelli laga veitt leyfi til afnota
eða hagnýtingar auðlinda eða annarra takmarkaðra almannagæða, gegn fullu
gjaldi og til tiltekins hóflegs tíma í senn. Slík leyfi skal veita á
jafnræðisgrundvelli og þau leiða aldrei til eignarréttar eða
óafturkallanlegs forræðis yfir auðlindunum.“ Með fullu gjaldi er átt við
fullt markaðsverð fyrir nýtingarréttinn.
|
Náttúruvernd
„Náttúra Íslands er undirstaða lífs í
landinu. Öllum ber að virða hana og vernda. ... Nýtingu náttúrugæða skal
haga þannig að þau skerðist sem minnst til langframa og réttur
náttúrunnar og komandi kynslóða sé virtur. ... Með lögum skal tryggja
almenningi aðgang að undirbúningi ákvarðana sem hafa áhrif á umhverfi og
náttúru, svo og heimild til að leita til hlutlausra úrskurðaraðila.“ Í
þessu felst, að venjulegt fólk getur leitað réttar síns vegna
umhverfisspjalla.
|
Upplýsingaréttur
„Upplýsingar og gögn í fórum stjórnvalda skulu vera tiltæk án
undandráttar og skal með lögum tryggja aðgang almennings að öllum gögnum
sem opinberir aðilar safna eða standa straum af.” Leyndinni þarf að
linna.
|
Óspilltar embættaveitingar
„Með lögum skal
koma á skipan sem tryggir að hæfni og málefnaleg sjónarmið ráði við
skipun manna í embætti. Þegar ráðherra skipar í embætti dómara og
ríkissaksóknara skal skipun borin undir forseta Íslands
til staðfestingar. Synji forseti skipun staðfestingar þarf Alþingi að
samþykkja skipunina með 2/3 atkvæða til að hún taki gildi.
Ráðherra skipar í önnur æðstu embætti, eins og þau eru skilgreind í
lögum, að fenginni tillögu sjálfstæðrar nefndar. Velji ráðherra ekki í
slíkt embætti einn þeirra sem nefndin telur hæfasta er skipun háð
samþykki Alþingis með 2/3 atkvæða. Forseti Íslands skipar formann
nefndarinnar.“ Þetta þýðir, að ráðherrar geta ekki lengur upp á
sitt eindæmi skipað óhæft fólk í æðstu embætti. Þetta ákvæði vísar á
skarpari valdmörk og mótvægi, gagnkvæmt aðhald og eftirlit.
|
Við lýsum eftir rökræðum
Nær öll 114 ákvæði frumvarpsins voru samþykkt
án mótatkvæða í ráðinu. Frumvarpið í heild var samþykkt við nafnakall
með öllum greiddum atkvæðum, 25 alls. Við höfum ráðfært okkur við fjölda
fólks innan lands og utan, bæði sérfræðinga og aðra, sem hafa sent okkur
gagnlegar ábendingar og erindi. Öllu þessu fólki þökkum við af heilum
hug. Við lýsum eftir rökræðum um þetta framsækna frumvarp og stuðningi
fólksins í landinu við það.
|