Milli steins og sleggju
Eftir bankahrunið í október 2008 leit Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn svo á, að það þyrfti ekki að taka efnahagslífið í landinu nema tvö ár að komast aftur á réttan kjöl. Þessi ályktun var að vísu í bjartsýnna lagi, þótti mér þá, en hún var reist á vandlegri skoðun sérfræðinga sjóðsins á tiltækum gögnum. Ein lykilforsendan, sem Seðlabanki Íslands bjó sjóðnum í hendur, var, að erlendar skuldir þjóðarbúsins í árslok 2009 myndu nema 160 prósentum af landsframleiðslu að loknum gríðarlegum afskriftum á skuldum gömlu bankanna við erlenda lánardrottna. Afskriftirnar voru taldar nema um fimmfaldri landsframleiðslu. Sjóðurinn taldi, að landsframleiðsla myndi standa í stað 2010 og taka síðan að vaxa aftur 2011 og eftirleiðis um 4 prósent á ári, sem er mikill vöxtur í sögulegu samhengi. |
Þessar vonir brugðust. Til þess liggja ýmsar ástæður, þótt hér verði
látið duga að tilgreina þrjár.
Í fyrsta lagi reyndust tölur Seðlabankans um erlendar skuldir
þjóðarbúsins alvarlega vanmetnar. Nú eru skuldirnar taldar hafa numið
307 prósentum af landsframleiðslu í árslok 2009, ekki 160 prósentum.
Seðlabankinn vanmat með öðrum orðum skuldirnar um næstum helming. Þetta
vanmat á skuldunum í upphafi hefur sett strik í reikninginn með því að
auka til muna áhyggjur manna af skuldaþoli þjóðarbúsins, svo sem
skiljanlegt er, og tefja þannig fyrir lausn IceSave-málsins. |
Í annan stað hétu stjórnvöld því við gerð efnahagsáætlunarinnar með
fulltingi AGS í nóvember 2008, að þau myndu leysa ágreininginn við Breta
og Hollendinga um IceSave-skuldbindingarnar. Þetta fyrirheit var hluti
af skriflegri viljayfirlýsingu ríkisstjórnarinnar og Seðlabankans. Ljóst
mátti vera, að stuðningur AGS og Norðurlanda við áætlunina gæti reynzt
vera háður því, að þetta heit yrði efnt, enda hafa stjórnvöld statt og
stöðugt sagt, að þau myndu standa við skuldbindingar ríkisins erlendis.
Slíkar yfirlýsingar stjórnvalda eru bindandi að þjóðarétti eins og
Ragnhildur Helgadóttir prófessor hefur bent á. Ríkisstjórnin stóð fyrir
sitt leyti við heitið, en hún reyndist ekki hafa meiri hluta Alþingis að
baki sér fyrr en fimmtán mánuðum eftir hrun. Og þá kaus forseti Íslands
að grípa fram fyrir hendurnar á Alþingi líkt og Alþingi hafði gripið
fram fyrir hendurnar á ríkisstjórninni sumarið 2009. Nú stefnir málið í
strand í þjóðaratkvæðagreiðslu. |
Í þriðja lagi þykir mörgum það ekki boðlegt að þurfa sem skattgreiðendur
að axla þungar kvaðir fram í tímann af völdum afglapa og hugsanlegra
lögbrota í einkabankarekstri, á meðan sökudólgarnir hafa ekki enn verið
dregnir til ábyrgðar að lögum og stjórnvöld sýna því máli næsta lítinn
áhuga. Áhugaleysið kann að helgast af því, að bankarnir og skyld
fyrirtæki dældu fé í þrjá af fjórum stærstu stjórnmálaflokkunum, svo sem
Ríkisendurskoðun hefur nú upplýst. Eitt er að fella sig úr fjarlægð við
staðfestingu Alþingis á erlendum skuldbindingum. Annað mál, finnst
mörgum, er að láta bjóða sér inn í kjörklefa til að staðfesta gerninginn
með atkvæði sínu. Auk þess henta hvorki skuldamál né samningar við
erlend ríki til þjóðaratkvæðagreiðslu, og IceSave-málið er hvort tveggja
í senn. |
Strandi IceSave-málið í þjóðaratkvæðagreiðslunni í febrúar eða marz,
munu Norðurlöndin næstum örugglega hætta fjárstuðningi sínum við Ísland,
enda verða úrslitin túlkuð þar sem svo, að vöflur séu á Íslendingum
frammi fyrir bindandi skuldbindingum Íslands við önnur lönd. Fari svo,
mun AGS þá annaðhvort einnig þurfa að draga sig í hlé og skilja landið
eftir á berangri, þar eð sjóðurinn má ekki samkvæmt reglum reiða fram
meira fé en hann hefur þegar boðið, eða bjóða fram stuðning við nýja
áætlun með sýnu harkalegri aðgerðum í fjármálum ríkisins en nú standa
fyrir dyrum. Þá harðnar á dalnum. Hafni stjórnvöld slíku boði, munu þau
líklega telja sig nauðbeygð að grípa til gömlu ráðanna, hleypa
verðbólgunni á skrið með hjálp Seðlabankans án verðtryggingar og leggja
til atlögu við lífeyrissjóðina, þótt þeir eigi að heita eign
lífeyrisþega. Hætti ríkisstjórnin við að halda þjóðaratkvæðagreiðsluna,
verður hún sökuð um að brjóta stjórnarskrána líkt og 2004.
Stjórnmálastéttin hefur stefnt endurreisn efnahagslífsins í voða. Fyrir
hálfu öðru ári virtist sem kreppan yrði skammvinn, en nú er hætta á
þungum afturkipp og upplausn. Ríkisstjórnin, Alþingi og forseti Íslands
bera þunga ábyrgð á þeirri stöðu, sem nú er komin upp. Þetta þurfti ekki
að fara svona. Þjóðin getur gripið í taumana, nema hún kjósi heldur að
steypa sér fram af hengifluginu.
|