Á eigin fótum?
Margir líta svo á, að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS) leggi nú línurnar um hagstjórn á Íslandi. Sjóðnum er kennt um háa vexti, hækkun skatta, niðurskurð ríkisútgjalda, lágt gengi krónunnar, gjaldeyrishöft, vaxandi skuldabyrði, versnandi lífskjör og aðrar afleiðingar hrunsins. Þetta er eins og að kenna slökkviliðinu um íkveikju. AGS er hér í boði magnþrota stjórnvalda, sem ásamt eigendum og stjórnendum banka og annarra stórfyrirtækja keyrðu Ísland í kaf. Seðlabankinn varð tæknilega gjaldþrota með því að veita bönkunum lán gegn ónýtum veðum. Ríkissjóður varð að leggja Seðlabankanum til hundruð milljarða króna, sem sóttar verða í vasa skattgreiðenda. Ísland rambaði og rambar enn á barmi einangrunar, aðfangaskorts og neyðar. Ríkisstjórnin kvaddi AGS á vettvang til að leggja á ráðin um endurreisn bankanna og efnahagslífsins og leggja fram lánsfé til að efla gjaldeyrisforða Seðlabankans og forða gengi krónunnar frá frekara falli. Aðkoma sjóðsins var nauðsynleg til að tryggja viðbótarlánsfé frá Norðurlöndum og Rússlandi. Einu löndin, sem vildu lána Íslendingum fé án skilyrða, voru Færeyjar og Pólland. |
AGS er hér í ráðgjafarhlutverki. Stjórnvöldum er í sjálfsvald sett,
hvort þau þiggja ráðin og lánin, sem fylgja þeim. Gjaldeyrisláni
sjóðsins til Seðlabankans fylgja skilyrði um hagstjórnina í samræmi við
regluverk og vinnulag sjóðsins. Skilyrðunum er ætlað að tryggja, að
áætlunin beri árangur. Sjóðurinn kappkostar að gæta jafnræðis milli
aðildarlanda, svo að skilyrðin séu keimlík land úr landi við líkar
aðstæður, en þó þannig að tekið sé mið af staðháttum. Þetta er
þrautreynt fyrirkomulag, sem er ætlað að skapa örvandi umgerð utan um
efnahagsáætlunina og aga. En þetta er vandrataður vegur. |
Við bætist vandinn, sem fylgir því, að AGS hefur ekki bolmagn til að
útvega allt það fé, sem þarf til að reisa lönd úr rústum. Ísland er gott
dæmi. Þótt sjóðurinn teygi sig út á yztu nöf, getur hann samkvæmt settum
reglum ekki lagt fram nema langt innan við helming þess lánsfjár, sem
hann telur þurfa til að tryggja framgang áætlunarinnar. Danmörk,
Finnland, Noregur og Svíþjóð leggja fram næstum annað eins.
Fjárhagsaðstoð þeirra er skiljanlega einnig háð skilyrðum. Norræn
gjaldeyrislán til Íslands nema rösklega 40 þúsund krónum á hverja
fjögurra manna fjölskyldu á Norðurlöndum. Það er mikið fé. Löndin fjögur
eru sögð ætlast til, að Alþingi staðfesti IceSave-samninginn í samræmi
við kröfur annarra Evrópuþjóða. Verði hann felldur á Alþingi, er aðstoð
Norðurlandanna við áætlunina trúlega sjálfhætt, og þá er aðstoð AGS við
Ísland í uppnámi. Þá standa Íslendingar einir á berangri. Sé þessi
lýsing rétt (stjórnvöld hafa ekki upplýst þetta frekar en margt annað),
virðist sjóðurinn hafður fyrir rangri sök, þegar hann er sagður ganga
erinda Breta og Hollendinga í IceSave-málinu. |
Þegar efnahagsáætlun ríkisstjórnarinnar og Seðlabankans var birt í
nóvember 2008, virtist hún geta gengið upp, þar eð erlend skuldabyrði
þjóðarbúsins virtist viðráðanleg. Nú eru komnar fram nýjar upplýsingar
um mun meiri skuldir við útlönd. Munurinn á gamla og nýja skuldamatinu
er mikill eins og ég lýsti á þessum stað fyrir viku. Seðlabankanum bar
að reiða fram réttar tölur í nóvember, en það verkefni reyndist honum
ofviða. Af skekkjunni leiðir, að hættan á þjóðargjaldþroti eða vanskilum
ríkisins réttar sagt, sem virtist óveruleg í nóvember, er nú orðin
raunveruleg. Ríkissjóður stendur frammi fyrir gjalddaga 2011 vegna láns
frá 2006 til að tvöfalda gjaldeyrisforðann og þarf þá á endurfjármögnun
að halda, en óvíst er, hvort hún tekst. Ef ekki, getur ríkissjóður lent
í vanskilum með þessa skuldbindingu og aðrar.
|
Hafi komið til greina, að Norðurlöndin vildu leggja á sig að forða
íslenzka ríkinu frá yfirvofandi vanskilum, virðist það nú ólíklegt.
Ísland hefur síðustu ár verið vettvangur augljósra efnahagsbrota,
sannkallað þjófabæli, sumpart í boði meðvirkra stjórnvalda, sem seldu
bankana einkavinum við vildarkjörum þrátt fyrir vel þekktan brotaferil
eins þeirra, og brugðust síðan eftirlitsskyldu sinni með öllu. Við þetta
bætist veikluleg rannsókn brotanna, þar til ríkisstjórnin fyrir
frumkvæði fólks úti í bæ réð Evu Joly rannsóknardómara í þjónustu sína.
Stjórnvöld virðast ekkert hafa gert til að hrinda þeim þráláta orðrómi,
að bankarnir hafi einn eða fleiri baðað fé fyrir Rússa. Allt þetta
blasir við frændum okkar og vinum á Norðurlöndum og kann að slæva áhuga
þeirra á að rétta Íslandi frekari hjálparhönd.
|
Fréttablaðið, 16. júlí 2009.