Ríki í ríkinu
Ríkisstjórn Framsóknar og Sjálfstæðisflokks hefur 60% sæta á þingi í
krafti 51% atkvæða kjósenda í kosningunum 2013.
Þær kosningar hefðu að réttu
lagi átt að vera hinar síðustu, sem haldnar eru eftir gildandi
kosningalögum, þar eð 2/3 hlutar kjósenda höfnuðu þessum lögum með því
að lýsa stuðningi við jafnt vægi atkvæða í þjóðaratkvæðagreiðslu um nýja
stjórnarskrá 2012. Næstu
alþingiskosningar munu orka tvímælis, að ekki sé meira sagt, þar eð þær
verða haldnar skv. lögum, sem kjósendur hafa hafnað.
Gróft misvægi atkvæða felur í
sér mismunun og mannréttindabrot, sem kjósendum gafst í fyrsta sinn færi
á að andæfa milliliðalaust í þjóðaratkvæðagreiðslunni 2012.
Stjórnmálaflokkarnir virðast þó
ætla að reyna að fara sínu fram og hafa þjóðaratkvæðagreiðsluna að engu.
Þeir hegða sér eins og ríki í
ríkinu eins og Ólafur Jóhannesson, síðar forsætisráðherra, lýsti í
tímaritinu Helgafell þegar
árið 1945. Þeir færa sig
upp á skaftið, séu þeir ekki stöðvaðir.
Alþingi leikur sér að eldi með því að lítilsvirða lýðræðið. Nýkjörið
Alþingi nýtur trausts 13% kjósenda skv. nýrri könnun MMR.
Þar er við stjórnmálaflokkana að
sakast. Aðeins bankakerfið býr
við minna traust. Bankarnir jusu
lánsfé og styrkjum í nafngreinda stjórnmálamenn og flokka fyrir hrun svo
sem fram kemur í skýrslu RNA um hrunið (sjá 2. bindi, bls. 200-201, og
8. bindi, bls. 164-170). Ekkert
hefur enn spurzt um uppgjör þeirra viðskipta.
Engum þarf að koma á óvart, að
2/3 hlutar Íslendinga telja spillingu útbreidda í stjórnmálum og
stjórnsýslu landsins skv. nýlegri rannsókn Gallups. |
Eitt fyrsta verk ríkisstjórnarinnar í fyrra var að aflétta áður ákveðnum
veiðigjöldum af útgerðinni eins og til að auglýsa, að nóg væri til af
opinberu fé. Seðlabankastjóri
hafði áður stefnt bankanum fyrir rétt vegna launadeilu eins og til að
auglýsa, að engin þörf væri fyrir aðhald í launamálum.
Á hvorugum staðnum virtist vera
til að dreifa djúpum skilningi á viðkvæmri stöðu efnahagsmálanna í
hrundu landi.
Ríkisstjórnin bjóst síðan til að draga umsókn um aðild að ESB til baka í
eitt skipti fyrir öll í stað þess að láta sér duga að leggja hana til
hliðar til að binda ekki hendur kjósenda fram í tímann. Ríkisstjórnin
hrökk frá þessari ráðagerð vegna mótmæla almennings á Austurvelli og
undirskrifta 22% atkvæðisbærra manna undir áskorun til Alþingis um að
falla frá málinu. Skoðanakönnun
Fréttablaðsins sýndi, að 82% kjósenda vildu þjóðaratkvæðagreiðslu um
málið eins og stjórnarflokkarnir höfðu lofað. |
Nú bíður framlagningar á Alþingi frumvarp til nýrra
fiskveiðistjórnarlaga þvert á ákvæðið um auðlindir í þjóðareigu, sem 83%
kjósenda lýstu sig fylgjandi í þjóðaratkvæðagreiðslunni 2012.
Þegar ríkisstjórnin leggur
frumvarpið fram, verður fólkið í landinu að rísa upp og stöðva
gerninginn. Þess myndi að sönnu
ekki gerast þörf, væri nýja stjórnarskráin gengin í gildi, svo sem rétt
og eðlilegt hefði verið, þar eð þá hefði undirskrift 10% atkvæðisbærra
manna dugað til að vísa málinu í þjóðaratkvæði.
En úr því að Alþingi hefur
stungið nýju stjórnarskránni niður í neðstu skúffu hjá LÍÚ, neyðist
fólkið til að fara mótmælaleiðina. Þúsundir
manna sóttu mótmælafundinn á Austurvelli á mánudaginn var til að lýsa
andúð sinni á ríkisstjórninni og ýmsum verkum hennar. |
„Góðar fréttir af efnahagsmálum
þessa dagana ... Við erum á réttri leið,“ segir fjármálaráðherra.
„Allir dauðöfunda okkur“, segir seðlabankastjóri. Það er eins og
þeim komi það ekki við, að læknar eru í verkfalli.
Læknaverkföll tíðkast hvergi á
byggðu bóli nema í Nígeríu og nokkrum slíkum löndum.
Tónlistarkennarar eru í
verkfalli. Prófessorar stefna á
verkfall. Margt bendir til
víðtækra verkfalla snemma á næsta ári, þegar samningar ASÍ við Samtök
atvinnulífsins losna. Margar
helztu stofnanir landsins berjast í bökkum: Landspítalinn, Ríksútvarpið,
Háskóli Íslands, sveitarfélögin, tónlistarskólarnir o.s.frv.
Eyðilegging og upplausn blasa
við hvert sem litið er.
Og bankarnir standa á brauðfótum eins og sést á því, að Landsbankinn
virðist munu þurfa myndarlega meðgjöf frá ríkinu til að geta staðið í
skilum, ákveði ríkisstjórnin að koma í veg fyrir samning bankans við
kröfuhafa í þrotabú gamla Landsbankans.
Auk þess bíður ágreiningurinn um lögmæti verðtryggingar eins og
hún var framkvæmd lausnar fyrir dómstólum.
Eignastaða bankanna er því óljós
enn sem komið er. Landsbankinn
lætur það samt ekki aftra sér frá að ætla að reisa sér nýjar
höfuðstöðvar við hliðina á Hörpu í hjarta Reykjavíkur.
|