Mynd 40.
Átök um stjórnmál má
greina út frá tveim meginsjónarmiðum. Annars vegar greinir menn á um réttlæti:
þeir eru ýmist jafnaðarmenn í víðum skilningi eða ekki. Jafnaðarmenn telja, að
almannavaldinu beri höfuðskylda til að jafna kjör þegnanna og tryggja viðunandi
réttlæti í samfélaginu með afskiptum af ýmsum velferðarmálum. Aðrir leggja minni
áherzlu á jöfnuð þegnanna, velferð og samfélagsréttlæti og telja minni þörf á
íhlutun almannavaldsins til að efla jöfnuð og velferð, oft með þeim rökum, að of
mikill jöfnuður geti bitnað á hagkvæmni. Jafnaðarmenn geta svarað þessu þannig,
að of mikill ójöfnuður geti einnig dregið úr hagkvæmni. Báðir hafa nokkuð til
síns máls. Hins vegar greinir menn á um hagkvæmni: þeir eru ýmist
efnahagsumbótamenn eða ekki. Umbótamenn eru hlynntir breytingum, sem myndu auka
hagkvæmni í efnahagslífinu og lyfta lífskjörum almennings til langs tíma litið.
Aðrir sætta sig við óbreytt ástand án umbóta af tillitssemi við þá, sem hafa hag
af óbreyttri skipan, oft með þeim rökum, að róttækar umbætur myndu raska skiptingu
auðs og tekna og valda umróti og óþægindum í bráð. Jafnaðarmenn geta svarað
þessu þannig, að umbætur, sem lyfta lífskjörum almennings til lengdar, skapa
skilyrði til þess, að enginn þurfi að vera verr settur eftir en áður, þegar öllu
er á botninn hvolft. Við getum því skipt stjórnmálastefnum í fjóra flokka eins og
taflan sýnir.
|
Réttlæti í öndvegi |
Réttlæti ekki í öndvegi |
Hagkvæmni í öndvegi |
A |
B |
Hagkvæmni ekki í öndvegi |
C |
D |
Hálfhringurinn á myndinni að ofan
lýsir þeim höfuðvalkostum, sem stjórnmálaflokkar standa frammi fyrir. Réttlæti er
sýnt á lóðréttum ás og hagkvæmni á láréttum ás. Hvernig við mælum hagkvæmni
og réttlæti, skiptir ekki höfuðmáli hér. Réttlæti getur til dæmis átt við
sómasamlegan jöfnuð í eigna- og tekjuskiptingu. Hagkvæmni getur átt við
þjóðartekjur á mann eða vinnustund til langs tíma litið. Neðri helmingur
hálfhringsins lýsir því svæði, þar sem meira réttlæti og aukin hagkvæmni haldast
í hendur. Þarna eru mörg þróunarlönd stödd og fyrrverandi kommúnistalönd og ýmis
önnur: aukin rækt við heilbrigðis-, mennta- og velferðarmál í þessum löndum myndi
efla bæði hagkvæmni og réttlæti. Efri helmingur hálfhringsins lýsir á hinn bóginn
því svæði, þar sem frekari eftirsókn eftir réttlæti dregur úr hagkvæmni, með
því að frekari skattheimta til að standa straum af auknum ríkisútgjöldum myndi
slæva vinnuvilja og sparnað til dæmis. Í ritgerðinni Að flokka
stjórnmálastefnur er fjallað um það, hversu skipa má stjórnmálamönnum og
flokkum í flokkana fjóra að ofan. |